Föstudagur, 24. júlí 2009
ESB-rök ASÍ gagnrýnd frá Noregi
Aðalhagfræðingur norska alþýðusambandsins, LO, gagnrýnir rök ASÍ fyrir aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Í viðtali við norska ríkisútvarpið segir Stein Reegård að efnahagsleg rök fyrir aðild að Evrópusambandinu séu á veikum grunni. Hann segir kreppuna á Íslandi heimatilbúna og innganga í Evrópusambandið engu breyta um þær ráðstafanir sem stjórnvöld þurfi að grípa til.
Reedgård segir að ef Ísland hefði verið með evru væri ástandið enn verra. Háir vextir hafi þrátt fyrir allt verið hemill á þensluna og verðfall krónunnar geri atvinnulífið samkeppnisfært á ný.
Í umfjöllun norska ríkisútvarpsins er haft eftir Gylfa Arnbjörnssyni forseta ASÍ að upptaka evru sé nauðsynleg til að endurreisa atvinnulífið. Reedgård dregur dár að Gylfa og bendir á að Ísland muni ekki geta tekið upp evru á næstu árum, landið uppfylli ekki skilyrði Evrópusambandsins.
Norska alþýðusambandi hefur verið hlynnt aðild Noregs að Evrópusambandinu. Þar á bæ vita menn hins vegar að efnahagsleg rök fyrir inngöngu halda ekki vatni.
Hér er umfjöllun NRK.
Athugasemdir
Sæll Páll já það er furðulegt hvað ASÍ er áfjáð í að ganga inn í ESB og rökin fyrir því haldlítil hjá þeim. Gylfi fullyrðir að Íslenskir launþegar séu betur komnir í ESB en ella, hann virðist þá líta allfarið fram hjá þeim vandræðum sem steðjað hafa að verkalýðsfélögunum í ESB löndunum eftir að dómur féll í hinu svokallaða Vaxhólmsmáli.
Rafn Gíslason, 27.7.2009 kl. 18:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.