Andleg leti, útrásin og ESB

Stjórnvöld voru fangar hugmyndafræði í aðdraganda hrunsins sem lofaði að markaðurinn myndi gera alla ríka og leysa flest vandamál samfélagsins. Í áravís var unnið að því að koma óorði á rikisrekstur, samvinnurekstur og opinbert eftirlit. Hugsuðir á borð við Hannes Hólmstein Gissurarson léku lausum hala og skilja eftir sig vísdóm eins og þennan; sjálfstæðismaður hefur ekki áhuga á pólitík, á daginn vill hann græða en grilla á kvöldin.

Eina pólitíkin sem var rædd var nokkurs konar jaðarpólitík, eiturlyf og umhverfisvernd, svo dæmi séu tekin.

Útrásin óx í skjól andlegrar leti samfélagsins. Eftir hrun er kominn annar villigróður í stað útrásarinnar og hann heitir aðild að Evrópusambandinu. Rétt eins og frjálshyggjuútrásin er aðild að ESB ætlað að gera okkur efnuð og vera allra meina samfélagsbót.

Ef við tökum okkur ekki taki og snúum af þessari braut mun kannski einn afkomandi okkar enn með rænu líta yfir farinn veg, benda á eitthvert löngu dautt samfylkingarfífl, sem sagði; samfylkingarmaður vill sofa fram að hádegi, fara síðan í tölvuleik en láta útlendinga um forræði lands og þjóðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Félagi Páll !

 Gleymdu aldrei, að mikill meirihluti þjóðarinnar, dansaði sæll og fagnandi í

 áravís kringum gullkálfinn !

 Ég og þú, þeirra á meðal !

 Hverjir vilja ekki græða ?? !

 Jafnvel " socialistahugsuðurinn" Steingrímur J., maðurinn sem í dag lætur Samfylkinguna ganga yfir sig sem himinhátt fjall yfir hundaþúfu -samanber ESB., skelfinguna - , sá sami Steingrímur hefur hirt hverja krónu sem honum hefur áskotnast úr fjárhirzlum ríkisins !

 Mundu, að "aðeins" viðræður um aðild að ESB., kosta LÍTINN 1 MILLJARÐ !

 Hvað munar Samfylkinguna og vinstri græna um slíka smámynt á góðæristímum ?? !

Kalli Svdeinss (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 10:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband