Mánudagur, 26. janúar 2009
Bandalag stjórnmálamanna og fjölmiðla
Stjórnmálamenn og fjölmiðlar náðu þegjandi samkomulagi að það hafi stórpólitísk áhrif hverjir sitji í starfsstjórn fram að kosningum í vor. Það er í þágu beggja að almenningur trúi því að nú sé runnin upp ögurstund. Forsetinn tekur þátt í leiknum og kemur með yfirlýsingar. Stjórnmálafræðingar eru sömuleiðis með og gefa álit í austur og vestur.
Allir hafa eitthvað að iðja og til þess höfum við kjaftastéttir (bloggarar meðtaldir).
Athugasemdir
Og skildagatíðin í stjórmálaumræðunni verður notuð sem aldrei fyrr.
Einhver verður svo heppinn að geta sagt: "Sko. Ég sagði það!".
101 (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 22:24
Þú ert hættur að koma á óvart !
JR (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 22:35
Flokkarnir eru að fara í kosningabaráttu. Þeir hafa engan tíma til að stjórna landinu. Því síður að gríða til óvinsælla aðgerða. En fjölmiðlarnir dansa flott með og halda varla haus í sumum tilfellum.
Þorsteinn Úlfar Björnsson (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 23:13
Kjafstéttir!?! Maður þorir nú ekki öðru en þagna
EE (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 23:02
Kjaftstéttir var það. T-ið hvarf þarna.
EE (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 23:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.