Þýski stríðsguðinn vill ekki vakna

Svekkelsi að Þjóðverjar samþykktu ekki í Rammstein að senda skriðdreka í austurveg. Öldin var önnur síðast þegar þýsk stálbelti skriðu í austurátt. Líkt og í dag var fyrir 80 árum viðkvæðið að í húfi væri vestræn menning andspænis austrænni.

Bretar komust í gleðivímu 22. júní 1941 þegar þýskum skriðdrekum var stefnt til Kænugarðs. Áætlun Þjóðverja hét Rauðskeggur. Samkvæmt henni átti að sækja heim Moskvu þegar Úkraína væri að baki. Áætlunin gekk ekki eftir. Stríðsgæfan snerist Rússum í vil. Fjórum árum síðar voru það Rússar sem lögðu undir sig Berlín.

Vonbrigði að Þjóðverjar sendi ekki skriðdreka á austurvígstöðvarnar, segja breskir miðlar eftir fundinn í Rammstein í gær. Afdrif áætlunarinnar Rauðskeggs, Barbarossa á þýsku, situr enn í Þjóðverjum.

Fyrst sendum við skriðdreka, þá herþotur og loks þýska hermenn, segir þýski stjórnmálamaðurinn Sahra Wagenknect, sem vill ekki vekja til lífs þýska stríðsguðinn. Sahra er lengst til vinstri í þýskum stjórnmálum. Á hinum enda pólitíska litrófsins situr hægrikonan Alice Weidel, oft sögð öfgakona. En hún vill heldur ekki gera Þjóðverja að stríðsþjóð.

Sahra og Alice vekja athygli á að Græningjar í Þýskalandi, sem sitja í ríkisstjórn, eru hvað herskáastir. En sjálfir komu forystumenn Græningja sér undan herþjónustu. Hugrekki í orði en hugleysi í verki.

Í Rammstein í gær var Þórdís okkar Kolbrún utanríkis. Ólíkt Söhru og Alice er Þórdís Kolbrún býsna stríðsviljug. Meintar öfgar til hægri og vinstri vilja frið en meginstraumurinn krefst blóðfórna og vopnataks.  

Skjöl, sem nýlega var safnað saman, sýna svart á hvítu að vesturlönd, Nató-ríkin, vildu efna til átaka við Rússland í áravís áður en Úkraínudeilan varð að fullveðja stríði.

Munurinn á stríðinu, sem Þjóðverjar kynntu undir merkjum Rauðskeggs fyrir 80 árum, og Úkraínustríðsins í dag, er að á öldinni sem leið tókust á öfgar, nasismi og kommúnismi. Í dag er það meginstraumurinn, þeir sem telja sig til meðalhófsins, sem eru helstu vinir stríðs og vopnavalds.

Vakni þýski stríðsguðinn úr dvala er stigið skref í átt að þriðju heimsstyrjöld. Að þeir kenni sig við meðalhófið, sem vilja stíga það skref, er giska sérstakt. Umferðinni á gullna meðalveginum er stýrt af brjálæðingum.   

 


mbl.is Flýta þurfi vopnasendingum til Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er orðin holur hljómur orðatiltækinu - heimurinn væri svo miklu betri ef konur hefðu völd. Vígreif ÞKRG og Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands gefa stríðshauknum Ursulu von der Layen ekkert eftir þegar kemur að hvatningu til meiri átaka. Viðkvæðið nú er meiri vopn svo við megum hafa frið. Skítt með að ukrainska þjóðin er nú brytjuð í spað í Donbas. Friðarvopn NATO eru svo sannarlega ekki að gera sitt gagn 

Ragnhildur Kolka, 21.1.2023 kl. 13:13

2 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Las að skriðdrekaframleiðandinn segi að hann geti ekki afhent neina dreka fyrr en 2025. Svipað ástand í Bretlandi og amerísku drekarnir of flóknir og eyða of miklu.

Guðmundur Böðvarsson, 21.1.2023 kl. 13:28

3 Smámynd: FORNLEIFUR

Þjóðverjar sjá í gegnum áætlanir BNA, sem eru byrjaðar að leka hér i DK. Þeir muna enn að sérlegur sendimaður BNA í Úkraínu 2014 (og náinn samstarfsmaður Biden) talaði um "The Fucking EU" í samtali sem var hlerað. Svo fer dásamlega Dísa með 380 millur fra Slawa Islandia beint í vasa hermálaráðherra Ukraínu (sem er glæpon). Hann þarf brátt farareyri til BNA og getur þakkað Íslandi stuðninginn ef hann verður ekki drepinn af einhverjum samráðherrum sinna. Íslendingar hafa nú þegar sýknað liðið sem dæmt var fyrir morðin á Guðmundi og Geirfinni. Nú var stefnt hærra and beyond. Kannski Dísa ætti að leita sér að fasteign í Florída  nálagt úkraínskum vinum Íslands?

FORNLEIFUR, 21.1.2023 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband