Þriðjudagur, 22. nóvember 2022
Píratar fagna ofbeldi
Píratar vilja setja peninga til hælisleitenda en ekki til ellilífeyrisþega, öryrkja og í velferðarþjónustuna. Það lá fyrir. Nýtt er að Píratar eru jákvæðir gagnvart ofbeldi.
Afstöðu Pírata má finna í orðum Halldóru Mogensen þingmanns. Hún harmar ekki vaxandi ofbeldi hér á landi en er með böggum hildar að dómsmálaráðherra axli ábyrgð og fái fjármuni til að bregðast við ótíðindunum.
Halldóra lætur sér fátt um finnast að skipulögðum glæpasamtökum vaxi fiskur um hrygg og herji á samfélag sem hingað til hefur þótt friðsamlegt.
Píratar telja forgangsmál að setja peninga í útlendinga sem hingað koma í leit að öðru en vinnu; húsnæði og uppihaldi í hrekklausu samfélagi.
Píratar sýna samstöðu með skipulagðri glæpastarfsemi og eru jákvæðir gagnvart ofbeldi. Fyrir nokkrum árum stillti flokkssystir Halldóru, Þórhildur Sunna, sér upp fyrir framan myndavélar alþingis með svarta húfu þar sem á voru tveir hástafir, FO. Þórhildur Sunna er svo ánægð með boðskapinn að hún gerir höfuðfatið með torræðu áletruninni að einkennisbúningi sínum.
Nú er upplýst hvað stafirnir standa fyrir: Fögnum Ofbeldi.
Nóg fjármagn til þess að fara í stríð gegn fólki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gat ekki heyrt annnað í útsendingu frá Alþingi áðan
en að lausn Pírata á öllu væri að senda sem flesta til sálfræðings
Ég hef lengi furða mig á hverjir horfa á Dr Phil en nú er það augljóst
Grímur Kjartansson, 22.11.2022 kl. 15:50
Haha, góður Grímur.
Páll Vilhjálmsson, 22.11.2022 kl. 15:53
Kannski eru vinir pírata fólkið sem sér um öryggiskerfi og innflutning á þeim,,, nei, bara segi svona .
Loncexter, 22.11.2022 kl. 16:33
Píratar hleypa viljandi inn í landið glæpamönnum sem eru ekki geðveikir. Ofbeldishneigðir kannski, en ekki geðveikir.
Svo kemur askvaðandi annar kommúnisti, Jón að nafni, og setur á "forvirkar rannsóknarheimildir," sem eru ekki til þess að bregðast við þessum krimmum, heldur til þess að terrorisera venjulega íslendinga.
Krimmarnir eru heilagir. Það verður bara meira af þeim í framtíðinni, vegna þess að þá má alltaf nota sem afsökun fyrir fleiri valdbeitingarheimildum.
Þetta er aðferð sem er kölluð "Hegelian Dialectic."
https://areweallreallyeducated.com/hegelian-dialectic/
Ásgrímur Hartmannsson, 22.11.2022 kl. 18:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.