Bloggarinn og Namibíubókin: hótanir og aðgerðir

Mér var hótað í vor að drægi ég ekki tilbaka ummæli um tvo blaðamenn Kjarnans, og bæðist afsökunar á þeim, yrði mér stefnt fyrir dóm. Ekki dugði hótunin og því var mér stefnt í haust.

Í gær var tilkynnt, samkvæmt tengdri frétt, að málflutningur verði í febrúar. En það er önnur hótun, þriggja ára gömul, sem fékk athyglina.

Stórfrétt Stundarinnar er að fyrir þremur árum hafi bókaútgáfu verið hótað af Samherja málssókn ef útgáfan innkallaði ekki bók um Namibíumálið, sem innihélt staðlausa stafi. Aðrir fjölmiðlar taka málið upp. Þriggja ára frétt er bersýnilega veruleg tíðindi þegar það hentar í umræðunni.

Þórður Snær ritstjóri Kjarnans, sem stefnir bloggara fyrir að segja almælt tíðindi, gerir uppslátt úr frétt Stundarinnar. Á ritstjóranum er að skilja hótanir séu síðasta sort.

Samherjamenn höfðuðu aldrei mál. Þeir stefndu ekki bókaútgáfunni. Eina sem hefur gerst síðan í bókarmálinu er að Páll skipstjóri Steingrímsson skrifaði ritdóm í nokkrum færslum á fésbók og hrekur helstu staðhæfingar bókarinnar. Höfundar bókarinnar, blaðamenn RSK-miðla, hafa ekki sagt múkk um nýlegan ritdóm skipstjórans en þess meira um þriggja ára gamla hótun. 

Hótun um málssókn er orð. Málssókn er aftur aðgerð. Þegar í húfi er tjáningarfrelsið skýtur skökku við að meint fórnarlömb, blaðamenn RSK-miðla, skulu grípa til aðgerða gegn frelsi manna að tjá sig. Blaðamenn segjast í orði kveðnu standa vörð um frjálsa miðlun upplýsinga. En þegar upplýsingar, blaðamönnum ekki hagfelldar, eru bornar á borð krefjast þeir miskabóta.

Samherjamenn beittu orðum, eins og siðaðra manna er háttur í lýðfrjálsu samfélagi. Blaðamenn RSK-miðla þola ekki umræðuna þegar hún er þeim mótdræg og grípa til aðgerða gegn málfrelsinu.

Samkvæmt RSK-miðlum er málfrelsið aðeins fyrir útvalda. Þeir sem voga sér að andmæla þeim fá hótanir. Dugi það ekki er lögmönnum sigað á þá sem ekki láta segjast. Verðlaunuðu fréttahetjurnar heimta inngrip dómstóla þegar hallar á þær í umræðunni.

 


mbl.is Aðalmeðferð gegn Páli fer fram í febrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þessi málshöfðun er eins hlægileg og hún er grátleg. Hver maður með meira en gripsvit sér þversögnina í þessu. En þegar kemur að forréttindum þá liggja þau víst undantekningarlaust hjá Þórði Snæ. 

Ragnhildur Kolka, 12.11.2022 kl. 11:39

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Formaður Blaðamannafélagsins sagði fyrir skemmstu að önnur lög og reglur giltu fyrir blaðamenn, nokkuð sem ætti ekki við aðra. Í hvaða landi heldur hún að við búum í??? Sjáum til hvað dómstólar segi um þá fullyrðingu.!!!

Tómas Ibsen Halldórsson, 12.11.2022 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband