Þriðjudagur, 30. ágúst 2022
Fréttin.is þorir, styðjum útgáfuna
Fréttin.is sker sig úr íslensku fjölmiðlakerfi. Útgáfan gerir sér far um að birta óvinsælar skoðanir í jafn ólíkum málaflokkum og lofslagsumræðunni, kynjafréttum og heilbrigðismálum.
Íslensk fjölmiðlun er einsleit. Bandalag þriggja fjölmiðla RÚV, Stundarinnar og Kjarnans, RSK-miðlar, er áhrifamikið um hvað teljast fréttir og hvað ekki. Sést best á þöggun alls þorra fjölmiðla um RSK-sakamálið. Fréttin sker sig úr, brýtur þögnina.
Skoðanir eru réttar eða rangar eftir rökstuðningi þeirra. Um fréttir gildir að engin frétt er betri en heimildin fyrir henni. Í öllum fjölmiðlum birtist efni sem heldur ekki máli, sé grannt skoðað. Fréttin er ekki undantekning. En Fréttin gerir sér far um að fylgja ekki rétttrúnaði sem þorri fjölmiðla er áskrifandi að.
Pólitíski rétttrúnaðurinn í fjölmiðlakerfinu er hættulegur lýðræðinu. Upplýst samfélag þarf fleiri en eina skoðun, annars festumst við í allsherjarlygi; trúum að glæpir séu góðverk. Eins og RSK-miðlar hafa fyrir satt.
Fréttin nýtur ekki ríkisstuðnings, ólíkt flestum fjölmiðlum.
Hægt er að styðja Fréttina.is með því að fara á heimasíðu útgáfunnar og leggja inn á reikning. Margt smátt gerir eitt stórt.
Athugasemdir
Sammála þessu. Maður þarf alls ekki að vera sammála öllu sem fjölmiðill ber á borð til að kunna meta valkost við bergmálshelli hinna ríkisstyrktu fjölmiðla. Það er því sjálfsagt að styrkja útgáfuna.
Geir Ágústsson, 30.8.2022 kl. 07:45
Sammála! Rétttrúnadurinn svæfir fólk. Flestir nenna ekki að andmæla því það getur kostað blammeringar og vinslit. En staðreyndir skipta máli og því er þakkarvert að einhver skuli búa yfir þeim eldmóði sem þarf til að halda þeim til haga.
Ragnhildur Kolka, 30.8.2022 kl. 09:50
Ég er sammála. Það sýnir nú að ég get hrósað konum að ég viðurkenni að Margrét Friðriksdóttir sem er aðalmanneskjan á bakvið Fréttina og Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri á Sögu eru framúrskarandi að halda úti áberandi fjölmiðlum sem eru öðruvísi en kommasúpan víðast hvar annarsstaðar. Ég les stundum Fréttina og er sammála þar mörgu. Allavega sterkt andsvar við DV og því sem er lengst til vinstri.
Ingólfur Sigurðsson, 30.8.2022 kl. 12:14
Sammála eins og þeir hér á undan; síðan má fávís spyrja hvort útgafan er á pappír eða í þessu apparati. Takk!
Helga Kristjánsdóttir, 30.8.2022 kl. 14:18
Útgáfan er aðeins á apparatinu, netinu, Helga. Pappírsútgáfur eru dýrar.
Páll Vilhjálmsson, 30.8.2022 kl. 14:30
Tek umdir allt hér að ofan.
Sigurður Kristján Hjaltested, 30.8.2022 kl. 14:46
Sammála öllum her .... styrkjum Frettina og Útvarp Sögu ....
rhansen, 1.9.2022 kl. 22:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.