Alræðisvald Stefáns útvarpsstjóra

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri setti RÚV siðareglur í sumar. Siðareglurnar var hann með í smíðum í nokkra mánuði, samanber fundargerð 23. febrúar. Fjórða grein siðareglna RÚV er svohljóðandi:

Starfsfólk Ríkisútvarpsins rækir störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika. Starfsfólk Ríkisútvarpsins forðast að kasta rýrð á Ríkisútvarpið eða skaða ímynd þess og traust með framkomu sinni.

Í febrúar var upplýst að Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks væri sakborningur í lögreglurannsókn, RSK-sakamálinu

Sakborningur verður sá er lögreglu grunar að sé sekur um refsiverða háttsemi. Stefán útvarpsstjóri veit þetta. Hann er lögfræðingur og fyrrum lögreglustjóri.

Engu að síður lætur Stefán Þóru annast umræðuþátt á RÚV vegna sveitarstjórnarkosninga í vor. Þóra hafði þá verið sakborningur í þrjá mánuði. Hún beitti undanbrögðum að komast hjá skýrslutöku hjá lögreglu og beitir enn.

Í þriðju grein siðareglna RÚV segir um grunngildi að stofnunin skuli stuðla að ,,félagslegri samheldni" þjóðarinnar.

Ekki stuðlar það að félagslegri samheldni að sakborningur í lögreglurannsókn, er varðar m.a. líkamsárás með byrlun, gagnastuld og stafrænt kynferðisofbeldi, stjórni umræðuþætti í aðdraganda kosninga.

Með því að gera sakborning að umræðustjóra í lýðræðislegum kosningum er réttarríkinu gefið langt nef. Þóra umræðustjóri er ígildi yfirlýsingar um að starfsmenn ríkisfjölmiðilsins séu hafnir yfir leikreglur samfélagsins. Það veit ekki á ,,félagslega samheldni."

Í títtnefndum siðareglum segir í tíundu grein:

Um brot gegn siðareglum þessum og afleiðingar slíkra brota fer eftir eðli máls hverju sinni. Útvarpsstjóri, eða eftir atvikum stjórn Ríkisútvarpsins ef málefnið varðar útvarpsstjóra sjálfan, skal þó ávallt hafa endanlegt ákvörðunarvald.

Stefán útvarpsstjóri getur ekki dæmt í eigin sök. Það stendur upp á stjórn RÚV að grípa í taumana. Stjórn RÚV er skipuð níu einstaklingum, sem tilnefndir eru af alþingi. Einn að auki situr stjórn, fulltrúi starfsmanna.

Stefán útvarpsstjóri og grunaðir starfsmenn hafa brotið gegn fjórðu grein siðareglna RÚV: ,,kastað rýrð á Ríkisútvarpið" og ,,skaðað ímynd þess og traust með framkomu sinni." Brotin eru framin af ásetningi, ekki slysni.

En þá vaknar spurning. Hvernig og hvert er hægt að kvarta undan broti á siðareglum RÚV? Um leið og Stefán útvarpsstjóri setti nýjar siðareglur í sumar lagði hann niður siðanefnd. Ellefta og síða greinin segir þetta skýrt:

Siðareglur þessar öðlast þegar gildi. Samhliða falla úr gildi eldri siðareglur og siðanefnd, sem starfar samkvæmt þeim, lætur af störfum.

Ef ekki er hægt að kvarta undan broti á siðareglum og enginn úrskurðar eru siðareglurnar orðin tóm. Síðasti úrskurður fráfarandi siðanefndar fordæmdi vinnubrögð samstarfsmanns Þóru, Helga Seljan. Stefán kemur í veg fyrir þann möguleika að dómbærir aðilar, óháðir RÚV, úrskurði um málefni stofnunarinnar. Siðferði innanhúss á Efstaleiti er ekki upp á marga fiska.

Siðareglur Stefáns eru með þeim innbyggða ómöguleika, hvað útvarpsstjóra sjálfan varðar, að stjórn RÚV getur ekki virkjað siðareglurnar nema fyrst lýsa yfir vantrausti á útvarpsstjóra.

Með siðareglunum tekur Stefán útvarpsstjóri sér nánast alræðisvald að úrskurða um siðferðisleg álitamál. Valdheimildirnar notar Stefán til að skjóta skjólshúsi yfir sakborninga í refsimáli annars vegar og hins vegar hindra að þjóðin verði upplýst um aðild starfsmanna RÚV að líkamsárás með byrlun, stafrænu kynferðisofbeldi, gagnastuldi og broti á friðhelgi einkalífs.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Næsta fjölda-holl sem gistir Kvíabryggju að staðaldri verða einkaríkis-starfsmenn Ríkisútvarpsins og Skógræktarinnar og svo kallaðir "náttúruverndarmenn". 

Það er fyrir neðan allar hellur að aðrir fjölmiðlar landsins en Ríkismafíuvarpið skuli ekki vera stútfullir af fréttum um þetta mál.

Hvað segir það okkur almennt um svo kallaða "fjölmiðla". Jú að þeir séu orðnir innbyggt andþjóðfélagslegt glóbal-sovétríki í ríkinu.

Leiðin fram á við hlýtur að vera sú að við fáum gömlu flokksblöðin aftur, því þennan eina og samtryggða fréttasovétflokk glóbalista sem við höfum í dag er ekki á vetur setjandi. Engin þjóð þolir þessi fréttasovétmenni fréttanallans lengur.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 28.8.2022 kl. 12:07

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Stefán virðist því miður vera fastur í merkingarlausa orðskrúðanum sem einkennir Reykjavíkurborg

"fyrsta flokks vinnustaður þar sem góð liðsheild og virðing einkennir menninguna. Við leggjum ríka áherslu á traust og skiljum mikilvægi þess að hlusta og vera sífellt að læra hvort af öðru. Við erum fagleg í okkar störfum og fögnum frumkvæði og þori. Verkefnin eru krefjandi og skemmtileg og enn betra er að þau stuðla að því að einfalda og bæta líf íbúa og starfsfólks borgarinnar."

Grímur Kjartansson, 28.8.2022 kl. 14:04

3 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Eru ekki allir hinir fjölmiðlarnir styrktir af ríkinu? Þetta er allt orðnir ríkisfjölmiðlar. Er fólki afveg sama þó að það kosti marga milljarða á ári að reka þessa lygasjoppu sem segir litlar fréttir en treður skoðunum sínum ofan í fólk. Það virðist eins og almenningi langi til að vera heilaþveginn.

Kristinn Bjarnason, 28.8.2022 kl. 14:35

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Nei en vafra heila veginn;það gerist jafnhægt og ESB takturinn sem oft er líkt við þá sneiða daglega þunna agúrkusneið þar til við sjáum að hún er öll ha!? . Íslendingar sem hafa fyrir löngu áttað sig á hve Sundabraut er aðkallandi verkefni en heikjast á því vegna sífelldra deilna um smámuni og tefja það. 


Víst er það sorglegt ef manneskjur sem maður virðir brjóta siðareglur,en látum þá sjálf taka út refsinguna.

Helga Kristjánsdóttir, 28.8.2022 kl. 22:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband