Mánudagur, 13. júní 2022
Finnland og Níkaragva, Bandaríkin og Rússland
Finnland ætlar að ganga í Nató ásamt Svíþjóð. Vestræn afstaða er að fullvalda ríki eigi rétt að ganga í hernaðarbandalag og vista í sínu landi erlenda heri, kjarnorkuvopn ef því er að skipta.
Daníel Ortega forseti Níkaragva tekur fagnandi vestrænum boðskap og rétt fullvalda ríkja. Samkvæmt Washington Post býður Ortega Rússum að senda til sín herlið og vopn.
Síðast þegar þjóðríki í Suður-Ameríku bauð til sín rússnesku herliði lá við kjarnorkustyrjöld. Í sögubókum heitir atvikið Kúbúdeilan og er sextug í ár.
Bandaríkin telja Suður-Ameríku bakgarð sinn og leyfa engu erlendu stórveldi afskipti þar um slóðir. Stefnan er kölluð Monroe-yfirlýsingin og er 200 ára gömul.
Ef Suður-Ameríka er bakgarður Bandaríkjanna er Finnland kálgarður Rússa. Og verður nú spurningin sérlega athyglisverð um rétt fullvalda ríkja til að velja sér hernaðarbandalag.
![]() |
Finnar ganga ekki í NATO án Svía |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Eg er algerlega sammala ther og eg deili sannarlega thinum skodunum vardandi stridid Ukraina- Russland og tvøfeldni Vestur landa og Ameriku.
Ólafur Árni Thorarensen, 13.6.2022 kl. 12:32
Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig BNA bregðast við hersetu Rússa í Níkaragva. Maður bíður spenntur.
Ragnhildur Kolka, 13.6.2022 kl. 12:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.