Elko, N1, Krónan og skilaboð eigenda

Eggert Þór Kristófersson forstjóra Festar, sem á Elko, N1 og Krónuna, var rekinn fyrir að hlusta á unga konu, Vítalíu Lazarevu, sem sagði farir sínar ekki sléttar í samskiptum við Þórð Má Jóhannesson stjórnarformann Festar. Eggert Þór hefur að öllum líndum kynnt stjórn Festar sjónarmið sem ekki sýndu sparihliðina á Þórði Má stjórnarformanni.

Vítalía lagði fram kæru vegna framkomu Þórðar Más og tveggja annarra frammámanna í viðskiptalífinu, Ara Edwald og Hreggvið Jónsson. Þórður Már sagði af sér stjórnarformennsku í kjölfar ásakana ungu konunnar. Hinir tveir fóru sömu leið, undir þrýstingi eigenda og almenningsálits. 

Þótt kurlin séu ekki öll komin til grafar um samskipti Vitalíu og þremenningana virðist augljóst að þau uppfylltu ekki eðlileg viðmið í siðuðu samfélagi.

Mótsagnakenndar yfirlýsingar eigenda Festar um ástæður uppsagnar Eggerts eru ótrúverðugar. Engar líkur eru að fimm manna stjórn Festar hafi nokkrum vikum eftir skyndilegt brotthvarf stjórnarformanns komist að málefnalegri niðurstöðu um að félagið þyrfti nýjan forstjóra. Annað býr að baki. Nærtækasta skýringin er að Þórður Már sé skuggastjórnandi Festar og ráði ferðinni á bakvið tjöldin.

Vitalía segir að Eggert hafi reynst sér vel. Það er líklegasta skýringin á óvæntri uppsögn forstjórans. Hefnd fyrir að taka ekki þátt í yfirhylmingu.

Festi er almenningshlutafélag og lífeyrissjóðir eiga þar stóran hlut. Þórður Már er hluthafi og fékk stuðning annarra hluthafa til stjórnarformennsku. Hann brást trausti, sýndi af sér framkomu sem er óboðleg stjórnarformanni almenningshlutafélags. 

Í stað þess að vinna í sínum málum og bíða niðurstöðu kærunnar gengur Þórður fram undir formerkjunum ,,ég á þetta, ég má þetta."

Þetta 2007-viðhorf auðmanna á ekki að líðast. Rík skylda hvílir á meðeigendum Þórðar Más, ekki síst lífeyrissjóðum, að skera upp herör gegn ósómanum.

Gangi það fram að skuggastjórnandi með stórskaðað orðspor komist upp með að reka þá sem ekki hylma yfir siðleysið, að ekki sé talað um meint afbrot, eru kolröng skilaboð send til atvinnulífsins og út í samfélagið.


mbl.is Stjórn Festi staðfestir brottrekstur Eggerts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þormar

Þarna er ég sammála Páli Vilhjálmssyni!

Hörður Þormar, 11.6.2022 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband