Blaðamenn sameinast um óheiðarleika

Lygari til leigu, sögðu blaðamenn hér áður um almannatengla. Á þeim tíma var faglegur metnaður blaðamanna að segja fréttir byggðar á staðreyndum og traustum heimildum. Almannatenglar voru í hinu liðinu; drógu fjöður yfir sannleikann og sögðu ekki nema hálfa söguna. 

Nú er öldin önnur. Blaðamenn verðlauna glæpi. Tilgangur glæpanna er að hanna frásögn í þágu hagsmuna. Sannindi eru aukaatriði, pólitísk málafylgja aðalatriði. Blaðamenn eru á flótta undan réttvísinni, neita að mæta til yfirheyrslu hjá lögreglunni sem rannsakar sakamál þar sem a.m.k 4 blaðamenn eru sakborningar.

,,Blaða- og frétta­menn þurfa að þétta raðirn­ar og standa sam­an gegn þeim ógn­um sem steðja að stétt­inni," segir annar tveggja formanna í blaðamannafélögum sem nú sameinast.

Það á að þétta raðirnar um óheiðarleika og lögbrot. Blaðamenn standi saman gegn réttarríkinu.

Ekki einu sinni almannatenglum dytti í hug lífslygin sem blaðamenn hafa gert að sinni.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Efist einhver um skrif Páls
Þá nægir að lesa ritstjórnapistil Sigmundar Ernis í Fréttablaðinu í  dag

Grímur Kjartansson, 19.5.2022 kl. 08:40

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er hausinn á mér kalkaður,? Hvað er að finna í skrifum Sigmundar Ernis Grímur, sem veldur vafasömu áliti t.d.mínu á skrifum topp-bloggarans Pallvil?

Helga Kristjánsdóttir, 19.5.2022 kl. 17:35

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

t.d. "selja bankann góðkunningjum á afslætti"
Skráð hlutabréfaverð Íslandsbanka í dag er það sama og Bankasýslan seldi það á 117 kr á hlut og Lífeyrissjóðirnir keyptu lang mest

Grímur Kjartansson, 19.5.2022 kl. 19:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband