Hatrið á hvítri móður

Guðríður Þorbjarnardóttir átti sveininn Snorra í vesturheimi á 11. öld, samkvæmt arfsögn sem rataði í bækur. Guðríður varð stytta í höndum Ásmundar Sveinssonar og fékk heitið Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku.

Nýverið var styttunni stolið undir þeim formerkjum að hún væri rasísk og komið fyrir í öðru verki. Gjörningurinn er í takt við samtímakenningu, fræðilega kynþáttahyggju (critical race theory), er kennir að allir hvítir á hörund séu rasistar.

Í gær fór styttan af Guðríði til síns heima. Sama dag sagði í fréttum að frá 2014 hefur 14 sinnum verið ákært fyrir hatursorðræðu. Ekki er hermt hvort ákært hafi verið fyrir hatur á hvítum mæðrum. Sennilega ekki, þær eru jú allar rasistar samkvæmt kenningunni og njóta sem slíkar ekki verndar gegn ,,háðung, róg­b­urði, smán­un eða ógn­un."


mbl.is Fyrsta hvíta móðirin ekki lengur í eldflauginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Fáranlegt að "fréttamenn" vísi alltaf til þjófanna sem listakvenna í stað ræningja

Grímur Kjartansson, 17.5.2022 kl. 14:02

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Hvad veldur þessu sjálfshatri fólks sem hefur fengið allt upp í hendurnar? Gengur um rænandi og ruplandi og hótar løgsókn þegar uppum það kemst. 

Ragnhildur Kolka, 17.5.2022 kl. 15:31

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Kannski einmitt það að fá allt og þurfa oftast ekki að standa nein reiknisskil á framferði sínu,svona ef að líkum lætur.

Helga Kristjánsdóttir, 17.5.2022 kl. 21:42

4 Smámynd: FORNLEIFUR

FORNLEIFUR leyfir sér að minna á sitt innlegg í þessa undarlegu listaumræðu á Íslandi: https://fornleifur.blog.is/blog/fornleifur/entry/2277883/: Ég vona svo að ég verði ekki lögsóttur.

FORNLEIFUR, 18.5.2022 kl. 08:29

5 Smámynd: Hólmgeir Guðmundsson

Þetta mál skapar áhugavert fordæmi. Nú geta þeir sem uppvísir verða að þjófnaði hindrað með atbeina dómstóla lögguna í því að hirða af þeim þýfið, vísað til þess að verknaðurinn sé listgjörningur.

Hólmgeir Guðmundsson, 18.5.2022 kl. 18:40

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þú hittir naglann á høfuðið Helga. 

Ragnhildur Kolka, 18.5.2022 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband