Laugardagur, 5. mars 2022
Gréta, Pútín og vinstrimenn
Olaf Scholz ætlaði að verða loftslagskanslari Þýskalands en verður stríðskanslari, segir í frétt Die Welt. Scholz líkt og þorri vinstrimanna á vesturlöndum er sannfærður um að heimurinn sé á heljarþröm vegna manngerðra loftslagsbreytinga.
Eftir fall Sovétríkjanna og lok kalda stríðsins glötuðu vinstrimenn baklandi í baráttunni gegn kapítalisma, sem eðli málsins samkvæmt er manngerður. Loftslagsógnin varð nýja baklandið. Vinstrimenn máttu vita að loftslag verður ekki afhjúpað sem svikamylla, líkt og Sovétríkin og kommúnisminn.
Ógnarorðræðan um hamfarahlýnun fellur vel að átakakenningum vinstrimanna að maður sé manni úlfur. Maður þarf ekki að skilja vísindi til að trúa, ekki frekar en að lesa Marx til að vera sósíalisti. Trú og sannfæring eru allt, rök og staðreyndir ekkert.
Loftslagsógnin sameinar vinstrimenn á Fróni, þótt svo hátti til að þeir starfi í mörgum flokkum. Krafturinn í orðræðunni var slíkur að nokkrum dögum fyrir kosningar varð Framsókn loftslagsflokkur, a.m.k. í orði.
En nú eru blikur á lofti. Pútín í Rússíá er orðinn helsti ógnvaldur mannkyns, nánast á einni nóttu - nánar tiltekið aðfararnótt 22.02.2022 þegar hann tók fyrstu sneiðina af Úkraínu.
Pútín er þægilegur andskoti hægrimanna. Hann er einfaldlega endurholdgaður Stalín. Vinstrimenn eru aftur í þeim vanda að sumir hafa skráð í erfðaefnið sitt samúð með öllu rússnesku. Í hundrað ár og fimm betur er Rússland móðurland byltingarinnar.
Pútín sem ógnvaldur ónýtir andstöðu Vinstri grænna við Nató. Sósíalistar Gunnars Smára saka gagnrýnendur Pútín um auðvaldsþjónkun. Viðreisn getur ekki trompað Sjálfstæðisflokkinn í Pútínandstöðu. Samfylking og Píratar finna ekki múslíma á flótta undan Pútín og hafa því ekkert til málanna að leggja.
Verst af öllu fyrir vinstrimenn er að á meðan Pútín gerir út skriðdreka og eldflaugar nennir enginn að hlusta á loftslagsfréttir. Innst inni veit almenningur að manngert veður er bábilja. Frá því að jörðin fékk lofthjúp hafa skipst á skin og skúrir með tilheyrandi breytingum á hitastigi og koltvísýringi í andrúmsloftinu.
Aðeins með stöðugum áróðurshernaði var hægt að blekkja nógu marga í senn til að halda loftslagssýningunni gangandi. Frá lokum kalda stríðsins sárvantar illmenni í vestræna söguþráðinn. Osama bin Laden og Hussein í Írak voru ekki einu sinni aukaleikarar, aðeins leikmunir. Pútín, á hinn bóginn, er með alla burði til að standa undir frásögn um baráttu góðs og ills. Hængurinn er sá, fyrir vinstrimenn, að þó nokkrir þeirra eru laumuskotnir í þeim rússneska. Svo er hitt, sem ekki síður er vinstrimönnum sárt, að þeir ganga í bandalag með Bandaríkjunum og Nató í gagnrýni á Pútín.
Takmörk eru fyrir hvað fólk nennir að óttast margt í einu. Hernaðarmaskína Pútín að störfum í Úkraínu er myndrænni en skógareldar í Ástralíu. Go figure, eins og Kaninn segir, hvor ógnin ýti hinni úr kastljósinu.
Hliðarafurð Úkraínustríðsins er að loftslagsógnin er ekki lengur meginviðfangsefni stjórnmálanna. Gréta á ekki sjens í Pútín.
Tal um endalok Pútíns tálsýn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það má sem sagt segja að innrásin í Úkraínu tók allt loft úr kanslaranum?
Theódór Norðkvist, 5.3.2022 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.