Þriðjudagur, 7. desember 2021
Vinstrimenn vilja bólupassa
Samfylking og Píratar eru fylgjandi mismunun óbólusettra. Helga Vals segir ,,pukrast" með málið og Þórhildur Sunna tekur undir.
En í stað þess að lýsa sig fylgjandi mismunun segja þær stöllur að taka þurfi ,,umræðuna." Þetta er sama orðalag og margir ESB-sinnar notuðu þegar þeir vildu ekki eða þorðu ekki að gangast við sannfæringu sinni.
Frjálslynda vinstrið varð stjórnlyndara í farsótt, bæði hér heima og erlendis. Það er afleiðing áratugaþróunar. Rauður þráður er í gegnum ESB-áráttu til loftslagsfræða Grétu Thunberg og yfir í bólu-apartheit. Góða fólkið er á sama stað og þýskur almenningur á þriðja áratug síðustu aldar. Stjórnlynd frelsun er boðorðið. Hægrimenn vita aftur að stjórnlyndi og frelsi er sitthvað.
Þeir sem eru á móti bólu-apartheit segja það upphátt. Fylgjendur krefjast ,,umræðu." Góða fólkið er og verður alltaf huglaust og leitar skjóls í altækri hugmynd, - helst með foringja.
Segja umræðuna erfiða en vert að taka hana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Eru sjálfstæðismenn með skýra STEFNU á móti bóluefnapassa?
Jón Þórhallsson, 7.12.2021 kl. 08:32
Athyglisvert hve oft fólk sem segist vilja mannréttindi til allra er hlynnt bólusetningapassa.
Í fréttum RÚV var viðtal við heilbrigðisráðherra sem talaði um rétt fólks til að hafna bólusetningu. Hann rétt fékk að klára setninguna þegar klippt var á og fljótt farið í næstu frétt.
Pólitík og smitvarnir fara illa saman þessa dagana.
Rúnar Már Bragason, 7.12.2021 kl. 10:22
Það býr harðstjóri í mørgum Íslendingnum. Það mátti lesa út úr Gallup kønnun inni á døgunum. Sýnuverstir voru Sósíalistar (82%)en fast á eftir Framsókn og Viðreisn. Mestu vonbrigðin voru að sjá Sjálfstæðisflokksmenn 4ðu í røðin í med 64% fylgjandi aðskiljaðarstefnu. Jafnvel Miðflokksmenn voru meira en 50% fylgjandi.
Og þetta eftir að sjá að bólusetningar eru í bestafalli skammtíma verjandi, en verstafalli lífshættulegar fólki á besta aldri. Børn koma best út úr pestinni án bólusetninga. Samt a að dæla í þau tilraunabóluefni sem enginn veit hvaða langtíma aukaverkanir hafa .
Ragnhildur Kolka, 7.12.2021 kl. 14:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.