Laugardagur, 18. september 2021
Tunglið og fylgi vinstriflokka
Fullt tungl er á mánudag. Þá rísa hæst geðhvörfin sem valda dómgreindarbresti og fær fólk til að gera marga vitleysuna, t.d. að kjósa vinstriflokk.
Í frétt Landsspítala um tengsl sjúkdóma og stöðu tunglsins segir að ýmsir geðsjúkdómar geri vart við sig í fullu tungli. Geðhvörf eru þar á meðal.
Skoðanakannanir teknar þegar hallar að fullu tungli gefa ranga mynd af úrslitum kosninganna á laugardag. Þegar nálgast fullt tungl eru þeir næmu ýmist ofsakátir eða þunglyndir, ekki með sjálfum sér.
Kemur laugardagur knýr raunsæið dyra eftir þokkalegan nætursvefn. Fólk kýs annað tveggja Sjálfstæðisflokk eða Miðflokk. Í það minnsta nógu margir til að landið fari ekki í hundana.
Tunglfræði til bjargar á ögurstundu.
Vinstri sveifla þegar vika er eftir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég myndi frekar halda því fram að
slæmar fyrirmyndir og óæskileg áhrfi úr umhverfinu/frá fjölmiðlum
spili miklu stærri þátt í vanheilsu fólks heldur en tunglið:
https://www.youtube.com/watch?v=WZOpoPxJ1dk
Jón Þórhallsson, 18.9.2021 kl. 09:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.