Brotnir karlar í uppáhaldi öfgakvenna

Uppáhaldshópur öfgakvenna er nauðgarar. Þær stofna félagsskap til að halda verkum þeirra á lofti og gefa þeim krassandi viðurnefni, - fávita. Frummaðurinn steig ekki í siðræna vitið. 

Þeir siðmenntuðu, sem ekki lifa í hugarheimi öfgakvenna, vita að nauðgarar eru brotnir menn, aumingjar sem ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.

Ekki er úrvalshópur öfgakvenna fjölmennur. Ríkislögreglustjóri heldur tölfræði yfir afbrot. Þar má lesa að meðalfjöldi nauðgana á ári tímabilið 2001-2019 er 137. Gefum okkur að gerendur séu allir karlar. Konur nauðga sjaldan. Meðalfjöldi karla á Íslandi yfir sama árabil er 159 þúsund. Hlutfall nauðgara af öllum körlum er því 0,09 prósent.

Öfgakonur leggja sig fram um að auka hróður örlítils minnihluta karla, 0,09%. Þær efna til herferða í fjölmiðlum og fá lagskonur í Stígamótum að básúna fyrir alþjóð þetta merkilega fyrirbæri, tvífætta nauðgarann. Kvenfólkið kennir heila menningu við ósköpin og talar um ,,nauðgunarmenningu." Svona eins og þegar rætt er um menningu Neandertalsmannsins.

Vitað er að sumar konur leggja sig eftir brotnum mönnum, aumingjum. Nýmæli er að heil félagshreyfing kvenna leggi nótt við nýtan dag að halda á lofti orðspori aumingjanna.

 


mbl.is „Landsliðsþjálfari smætti reynslu þolenda“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dögg Sverrisdóttir

Ekki nóg með það! Nú skal breyta námsefni í kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum í takt við ,,nauðgunarmenninguna" eins og lesa má hér Arnar Sverrisson - arnarsverrisson.blog.is

Allt sömu konurnar og réðust til atlögu við KSÍ, einn strákræfill fékk að vera með í nefndinni upp á punt. Strákar eru markvisst brotnir niður.

Helga Dögg Sverrisdóttir, 8.9.2021 kl. 09:19

2 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

En hvort er í raun um að ræða nauðgunarmenningu eða falsásökunarmenningu ? Sé ekki betur en þeim ofstækisfemínistum vaxi fiskur um hrygg sem stunda grófa fjárkúgun. Þeir hlutir eru til sem svo alvarlegir eru að ásökunun ein veldur útskúfun og þá breytir engu hvort fótur er fyrir þeim ásökunum eður ei. Þá borga menn (konur eru líka menn) frekar þó saklausir séu.

Örn Gunnlaugsson, 8.9.2021 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband