Miðvikudagur, 26. maí 2021
Samherjakonan og stolinn sími Páls - hvar er Helgi Seljan?
Arna Bryndís lögmaður Samherja má ekki vera ræðismaður Kýpur, segir Björn Leví pírati. Ástæðan er sú að stolinn sími Páls Steingrímssonar, sem einnig er starfsmaður Samherja, sýndi að Arna Bryndís og Páll töluðu máli Samherja.
Píratinn Björn Leví finnur sem sagt glæp þar sem fólk vinnur vinnuna sína.
Vinstrimenn og hagsmunahópurinn á Efstaleiti hljóta að kalla til rannsóknarblaðamanninn Helga Seljan til að upplýsa starfsglæpi Örnu Bryndísar og nafna. Helgi kann þá list að töfra fram skjöl og pappíra til framdráttar málstaðnum.
Óþarfi er að fjölyrða um stuldinn á síma Páls. Góða fólkið stundar ekki glæpi.
Skæruliði Samherja er ræðismaður Kýpur á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.