Miðvikudagur, 28. apríl 2021
Aftökur án dóms og laga - borgarastyrjöldin er hafin
25 fyrrum foringjar í franska hernum óttast borgarastyrjöld þar í landi. Óttinn stafar af vangetu og mótþróa innflytjenda að aðlagast vestrænum lífsháttum.
Nýverið var frönsk tveggja barna móðir skorin á háls fyrir utan lögreglustöð. Morðinginn var múslími. Í frétt af tilræðinu segir að morðinginn hafi verið skotinn til bana á vettvangi.
Franska lögreglan hefur tekið upp siðu og háttu bresku lögreglunnar sem skýtur á færi tilræðismenn við líf almennra borgara.
Skjóta til að drepa var til skamms tíma ekki stefna lögreglu í Vestur-Evrópu. En eftir að fjölmenningin hélt innreið sína með tilheyrandi hryðjuverkum kenndi neyðin naktri konu að spinna. Eða öllu heldur lögreglunni að skjóta og spara skattfé er færi í rannsókn og réttarhöld. Þegar velþóknun Allah er réttlæting morða eru dómstólar óþarfir.
Aftökur án dóms og laga sýna réttarríkið í öngstræti. Í þeim skilningi er borgarastyrjöldin þegar hafin.
![]() |
Valda usla með ummælum um borgarastríð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.