Föstudagur, 23. apríl 2021
Trausti veit, Biden ekki
Meðalhiti á Íslandi síðustu 200 ár hefur hækkað um 0,8 gráður á öld, segir Trausti Jónsson veðurfræðingur og byggir á tiltækum gögnum.
Hækkun á meðalhita um 1,6 gráðu á 200 ára tímabili er engin hamfarahlýnun heldur eðlileg náttúruleg sveifla.
Á þessu tveggja alda tímabili eru styttri skeið þar sem hiti fer ýmist hækkandi eða lækkar. Svona svipað og veðrið, sem breytist frá degi til dags. Trausti skrifar: ,,Hiti á kuldaskeiðinu 1965 til 1995 var lengst af lægri heldur enn hann var á hlýskeiðum 19.aldarinnar [við kölluðum það kuldaskeið sem nítjándualdarmenn hefðu kallað hlýskeið]."
Biden Bandaríkjaforseti og heimselítan vilja telja okkur trú um að náttúrulegar sveiflur á hitafari séu af mannavöldum. Biden og heimselítan eru fangar trúarbragða. Trausti talar vísindi.
Losun gróðurhúsalofttegunda helminguð fyrir 2030 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Blessaður Páll.
Ef Trausti talar vísindi þá er lágmarkið að hafa rétt eftir honum.
Hann bendir réttilega á að hita á jörðu hefur hlýnað og til sanninda um hve miklu hitinn var hærri á 20. öld en þeirri 19. að þá segir Trausti; "Hiti á kuldaskeiðinu 1965 til 1995 var lengst af lægri heldur enn hann var á hlýskeiðum 19.aldarinnar (við kölluðum það kuldaskeið sem nítjándualdarmenn hefðu kallað hlýskeið).". Hlýskeið þeirra, kuldaskeið okkar.
Trausti talar um hnattræna hlýnun, spáir í "Auðvitað er spurningin hversu lengi hlýindin halda út - við vitum ekki enn hversu stór hlutur hnattrænnar hlýnunar er í núverandi hlýindum hér á landi - hann er umtalsverður - enginn vafi er á því,".
Já þá er enginn vafi á að hann er umtalsverður.
Og það sem verra er Páll, og það er ástæða þess að Biden greyið lætur svona; "Á hinn bóginn má segja að taki hitinn enn eitt hlýindastökkið hljóti að vera illt í efni - fengjum við t.d. ámóta hlýnun og varð milli 1920 til 1930 ofan í þá hlýnun sem nú þegar hefur orðið.".
Já þá er illt í efni.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 23.4.2021 kl. 09:12
Ísland er 0,1 milljón ferkílómetrar en jörðin er 511 millljónir ferkílómetra. Með því að alhæfa út frá Íslandi einu er verið að gera svipað og þegar stuðningsmaður Trumps á Bandaríkjaþingi kastaði snjóbolta inn í þingsalinn á útmánuðum 2017 sem sönnunargagni þess að loftslag á jörðinni færi kólnandi en ekki hlýnandi.
Ómar Ragnarsson, 23.4.2021 kl. 13:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.