Mánudagur, 5. apríl 2021
Femínisti um karlmennsku, epli um appelsínu
Þegar yfirlýstur femínisti tjáir sig um karlmennsku er það eins og eplið sem sagði við appelsínuna ,,vertu eins og ég".
Þegar karl segist femínisti er hann að einhverju marki búinn að gefast upp á sjálfum sér, vill vera annað en hann er frá náttúrunnar hendi. Kynin eru tvö og maður velur ekki kyn sitt. Einstaklingur sem kennir sig við annað kyn en viðkomandi er náttúrulega er ekki sáttur í eigin skinni, glímir við persónulegt vandamál.
Þeir sem glíma við persónuleg vandamál eru gjarnir á að samfélagsvæða einkalíf sitt. Þeir kenna samfélaginu um vandkvæðin við að koma reiðu á eigið líf. Í fjölmiðlum finna þeir viðhlæjendur enda fjölmiðlar uppteknir af hinu afbrigðilega.
Allir bera ábyrgð á eigin lífi. Maskúlín sem kennir sig við femínin rís ekki undir ábyrgðinni.
Eru ekki sjálfkrafa karlrembur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kvenfólk hefur lengi átt erfitt með að horfa á íslenskann mann sem fær hærri laun en konan. Til að hækka laun hjá konum, þarf að sjálfsögðu að lækka laun karlmanna fyrst.
Af því leiðir að karlmaðurinn fær minnimáttarkennd, og fleiri og fleiri konur skilja ekkert í því af hverju þær finna ekki sannan karlmann með sjálfsálit, og enda svo uppi sem illa pirraðar lesbíur eða piparjúnkur.
Loncexter, 5.4.2021 kl. 16:10
Mikið svakalega er þetta búið að ganga lengi. fór þetta ekki allt með Óla skans sem átti óttalegan varg fyrir konu og braut m.a.viðbeinið í Óla.---
Helga Kristjánsdóttir, 5.4.2021 kl. 23:41
Í Wikipedia stendur: „Femínisti er manneskja sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því.“
Tryggvi L. Skjaldarson, 6.4.2021 kl. 08:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.