Fimmtudagur, 18. mars 2021
Jóhannes: ferðaþjónustan stjórni landinu - nei, takk
Í útrásinni um aldamót réðu bankar og stórfyrirtæki landinu. Tilrauninni lauk með hruni 2008. Nú er það ferðaþjónustan sem á að stjórna landinu, segir Jóhannes Þór Skúlason æðstiprestur samtaka sölufyrirtækja í ferðabransanum.
Kosningabaráttan er hafin, segir Jóhannes Þór og talar eins og sá sem valdið hefur. Hann hefur í frammi lítt duldar hótanir um að beita peningaafli á viðkvæmasta tíma stjórnmálamanna - í aðdraganda kosninga - til að knýja fram stjórnvaldsaðgerðir í þágu atvinnugreinarinnar.
Jóhannes fær prik fyrir frumlega ósvífni.
Hann [Jóhannes] segir að komist ferðaþjónustan ekki af stað í sumar sé hætt við því að mikil verðmæti fari í súginn og þekking og reynsla starfsfólks fari forgörðum.
Það var og. Ferðaþjónusta er orðin geimvísindi sem aðeins þrautþjálfaðir sérfræðingar ráða við. Gefðu okkur annan, Jói. Vanþróuð og fátæk ríki byggja afkomu sína á fjöldatúrisma.
Nei, takk, ferðaþjónustan á ekki að stjórna landinu. Landið var á góðri leið fyrir kófið að verða að sorphaug fjöldatúrisma. Tugþúsundir útlenskir farandverkamenn voru fluttir inn í landið sem lét á sjá vegna áníðslu. Innviðir brustu, s.s. heilbrigðiskerfi og samgöngur.
Það á að beita fullum þunga ríkisvaldsins til að takmarka óheft innflæði ferðamanna inn í landið og afnema með öllu niðurgreiðslu ferðaþjónustu.
Þurfum að hefja viðspyrnuna núna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.