Miðvikudagur, 27. janúar 2021
Undarleg frétt um útlend börn á Íslandi
RÚV segir í frétt að útlend börn á Íslandi þurfi meiri aðstoð vegna þroskaskerðingar en íslensk. RÚV segir eftirfarandi:
Árið 2019 voru 30% af öllum tilvísunum allra tilvísana sem bárust greiningarstöðinni vegna barna af erlendum uppruna og hefur þeim fjölgað talsvert undanfarin ár.
Útlendingar á Íslandi eru um tíu prósent af landsmönnum. Ef allt væri með felldu ættu útlensk börn með þroskaskerðingu að vera í líku hlutfalli, tíu prósent. En þau eru þrisvar sinnu fleiri.
Samkvæmt heimasíðu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins er hlutverk stofnunarinnar að
tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra.
Það þarf að útskýra hvers vegna börn útlendinga á Íslandi þurfa þrisvar sinnum meira á þjónustunni að halda en íslensk börn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.