Hvít lögga hetja demókrata - flóttamenn til Íslands?

Hvítur miðaldra lögreglumaður, Bri­an Sicknick, er hetja frjálslyndra vinstrimanna eftir að hann galt með lífi sínu varðstöðu við Þinghól þeirra Bandaríkjamanna.

Demókratar, þ.e. frjálslyndir vinstrimenn, töldu til skamms tíma lögregluna til óþurftar, vildu leggja hana niður með því að hætta fjármögnun, defund the police. Lögreglan, sérstaklega hvítir karlmenn í lögreglubúningi, voru taldir afkomendur þrælahaldara.

En, sem sagt, Brian Sicknick er hetjan sem reyndi að halda uppi lögum og reglu. Demókrötum var meinilla við lög og reglu á meðan þeir höfðu hvorki forsetaembætti né meirihluta í öldungadeildinni. Núna er valdið þeirra og uppgjör framundan.

Miðstöð skúrkanna í dag er Repúblikanaflokkurinn, Það á að setja flokkinn í heild á ákærubekkinn, segir New Republic. Þeir sem í gær héldu sig vera í góðum og gildum stjórnmálaflokki Abraham Lincoln vakna í dag upp við það að vera í glæpasamtökum - og eiga yfir höfði sér opinbera ákæru. Afturvirk lög eru sérgrein byltingarmanna.

Ísland tekur á móti flóttamönnum frá Venesúela vegna óstjórnar sósíalista. Haldi fram sem horfir má búast við Bandaríkjamönnum að flýja pólitískar ofsóknir í heimalandinu.

 


mbl.is Andlátið rannsakað sem manndráp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loncexter

Bandarískir stuðningsmenn Trump fengju ekki að koma einum fæti inn í leifsstöð ef ég þekki íslensk stjórnvöld rétt. En fólk af trú "friðarins" streyma óhindrað hingað alla daga allt árið.  

Loncexter, 11.1.2021 kl. 19:24

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Loncexter minn mjög fljótt skipast veður í lofti. Ekki er svo langt í næstu Alþingiskosningar og ótrúlegt að þessir flokkar sem stjórna núna nái að loka á Trumpista eða nokkra aðra,þegar þeir eru ekki lengur í stjórn.- Dettur þér eða nokkrum í hug að Framsókn sæki sitt gull í mund,ekki með þessa menn i stafni.- 

Helga Kristjánsdóttir, 12.1.2021 kl. 02:00

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"Haldi fram sem horfir má búast við Bandaríkjamönnum að flýja pólitískar ofsóknir í heimalandinu."

Þetta er reyndar búið að vera í gangi undanfarin fjögur ár. Ég veit persónulega um bandaríska ríkisborgara sem hafa á því tímabili flúið ástandið og sest að hér á Íslandi.

Guðmundur Ásgeirsson, 14.1.2021 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband