Twitter drepur lýðræðið - eða tístið

Ef Twitter er áhrifamikill samfélagsmiðill drepur hann lýðræðið, reynir það að minnsta kosti. Lýðræðið þrífst á frjálsu flæði hugmynda. Ef það flæði er stöðvað kafnar lýðræðið. 

En nú er ekki víst að Twitter sé merkilegur miðill. Kannski er þetta miðill fábjána og froðusnakka sem engu máli skipta til eða frá. Sé það tilfellið drepur Twitter tístið - sig sjálft. Farið hefur fé betra.

Væntanlega heyrist hljóð úr horni þeirra sem nota þennan miðil þegar sá frægasti þeirra sætir útskúfun.


mbl.is Twitter lokar alfarið fyrir Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Twitter, Facebook, instagram og allur sá pakki er búin að loka öllum samskiptaleiðum fólks. Fasisminn hefur tekið völdin og lætur kné fylgja kviði, brennandi af hatri út í boðflennuna sem -STAL sigrinum af Hillary.

Ragnhildur Kolka, 9.1.2021 kl. 02:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband