Mánudagur, 26. október 2020
Íslenskur Joe Biden boðar valdarán
Valdarán er nauðsynlegt til að knýja framgang nýrrar stjórnarskrár, segir Ragnar Aðalsteinsson lögmaður í álitsgjafaviðtali á Bylgjunni. Björn Bjarnason birtir orðrétta tilvitnun í Ragnar.
Ráðsettir hvítir karlar með byltingu og valdarán á vörum fá áheyrn. Joe Biden í Bandaríkjunum og Ragnar Aðalsteins á Íslandi.
Einu sinni mátti treysta að öldungar byggju yfir visku kynslóðanna. Öldrunarlækningar eru aftur komnar á það stig að gamalmenni tala eins og gelgjur. Stutt er í að hvítir karlar verða eilífir. Áhöld eru um hvort það megi kallast framfarir.
Athugasemdir
Ég vil nýja stjórnarskrá;
en ég vil nýta tækifærið og taka upp FORSETAÞINGRÆÐI hér á landi
eins og er í frakklandi,
þannig að FORSETI ÍSLANDS þyrfti þá að axla raunverulega ábyrgð á sinni þjóð
með því að leggja sjálfur af stað með stefnurnar í öllum stóru málunum;
þannig myndi hann vinna fyrir laununum sínum.
=Að völd, ábyrgð, yfirlýsingar og fjárhagsáætlanir
myndu þá haldast betur í hendur frá A-Ö..
Jón Þórhallsson, 26.10.2020 kl. 10:38
Til að leiðrétta höfund, þá er greinilegt að hann hefur ekki heyrt ágætt viðtal, höfudur líklega verið að horfa á RÚV en það sem Ragnar sagði og er mikilvætt að til þess að gera þær breytingar sem íhaldsfólk, höfundar og flestir gestir hans vilja alls ekki gera, þá GÆTI sú aðferð að taka völdin af þinginu flokkast sem valdarán án blóðsúthellinga
Ragnar Aðalsteinsson boðaði ekki valdarán.
Kannski skipta staðreyndir höfund minna máli.
Sigfús Ómar Höskuldsson, 26.10.2020 kl. 11:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.