Sunnudagur, 27. september 2020
Svört líf bandarísk og svartar skoðanir íslenskar
Svört líf skipta máli er öfgahreyfing í Bandaríkjunum með það að markmiði að ganga milli bols og höfuðs á kjarnafjölskyldunni og valda samfélagsupplausn með ásökunum um rasisma. Þeldökkir Bandaríkjamenn eins og Larry Elder og Coleman Hughes gagnrýna kenninguna um kerfislægan rasisma, sem er hornsteinn hugmyndafræði Svartra lífa er skipta máli.
Víkur nú sögunni til Íslands. Anna Karen Jónsdóttir skrifaði grein í Morgunblaðið á föstudag með fyrirsögninni ,,Rasismi og affjármögnun lögreglu."
Grein Önnu Karenar er vel rökstudd gögnum og tölum og þarft framlag til umræðu sem í eðli sínu er bandarísk en virðist einnig eiga hljómgrunn á Fróni.
Viðbrögðin við grein Önnu Karenar eru stórundarleg, svo ekki sé meira sagt. Í stað þess að ræða efni greinarinnar stunda sjálfskipaðir talsmenn Svartra lífa er skipta máli persónuníð og saka höfund um rasisma og fleira ógeðfellt.
Svört líf eru ekki mörg á Íslandi en kappnóg er af svörtum skoðunum.
Athugasemdir
Það er víst tabú að segja að Íslendingar séu fáfróðir, en þegar maður les sumt sem sagt er um Önnu Karen og grein hennar getur maður ekki annað en komist að þeirri niðurstöðu.
Ragnhildur Kolka, 27.9.2020 kl. 17:41
það þarf nú ekki að leita mikið eða lengi til að finna þetta
https://fee.org/articles/black-lives-matter-s-goal-to-disrupt-the-nuclear-family-fits-a-marxist-aim-that-goes-back-a-century-and-a-half
á meðan ég er almennt mjög hlyntur jafnrétti allra þá hringir þetta viðvörunarbjöllum hjá manni.
Emil Þór Emilsson, 27.9.2020 kl. 22:55
Halldór Jónsson, 28.9.2020 kl. 03:26
Góð grein Önnu Karenar er að sjálfsögðu sem köld vatnsgusa á bál-reiða fólkið sem ímyndar sér heiminn eftir eigin höfði. Það þolir því ekki tölulegar staðreyndir, sem allir hafa aðgang að, ef þær stemma ekki við fordómana sem það hefur byggt upp í sameiningu að hætti trúaðra á miðöldum sem börðust upp á líf og dauða við andaverur vonskunnar. Aðrar skoðanir eru villutrú og viðbrögðin við greininni eftir því.
Benedikt Halldórsson, 28.9.2020 kl. 06:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.