Sterk hvít kona - hlýtur að vera norn

Frjálslyndir og vinstrimenn mmunu gera norn úr tilnefningu Trump forseta til hæstaréttar Bandaríkjanna. Síðasta útnefning forsetans, vammlaus hvítur miðaldra karlmaður, fékk þá útreið að vera nauðgari sem skólastrákur. Vitnið gegn dómaranum, og meintur þolandi ofbeldisins, var kona sem hann hafði aldrei hitt. 

Í menningarstríðinu, sem nú geisar í Bandaríkjunum, og kallast stjórnmál, eru engin bolabrögð of lúaleg til að ekki megi nota þau. Illgirni fléttuð með trúgirni í orðræðu félagsmiðla eru engin takmörk sett.

Skáldskapur, eins og að Pútín Rússlandsforseti hafi tryggt kjör Trump 2016, fær vængi og er trúað af pólitískri sannfæringu.

Amy Coney Barrett er kaþólsk og fyllir flokk íhaldsmanna. Andstæðingarnir eru guðlausir í meira lagi en þó sannfærðir að djöfullinn leiki lausum hala og sé hvítur á lit.

 


mbl.is Hver er Amy Coney Barrett?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hún ætti að einbeita sér meira af því að sporna gegn hjónaböndum samkynhneigðra heldur en að vera of ströng á fóstureyðingarnar þó að þær séu óheppilegar.

Jón Þórhallsson, 28.9.2020 kl. 08:39

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég er nú á því að koma þurfi einhverjum bøndum á fóstureyðingar. Samkynhneigðir er fullorðið fólk sem hefur rétt á að ráða lífi sínu sjálft. 

Ragnhildur Kolka, 28.9.2020 kl. 10:02

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Fóstureyðingar eru oftast framkvæmdar af illri nauðsyn af ýmsum ástæðum og fólk ætti frekar að velta því fyrir sér hvenær SÁLIN taki sér bólfestu í fóstrinu frekar en að fólk sé fast í með eða á móti liðinu.

Varla myndum við vilja að gaypride-gangan fengi að stækka út í hið óendanlega.

Á endanum hlýtur einhver að þurfa að spyrna við fótum;

hver á að gera það?

Spurðu næsta prest af hverju "GUÐ" eyðði Sódómu.

Jón Þórhallsson, 28.9.2020 kl. 10:23

4 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Auðvitað eiga samkynheigðir að ráða lífu sínu. 

- - -

Það er verið að vinna í því að gera Amy Co­ney Bar­rett að norn.

Hún er ásökuð um að vera hvítur nýlendukúgari (white colonizer) eins og við Íslendingar. En samkvæmt hysterískum háskólafræðum er hvíti litur húðarunnar sönnunin. Punktur. En með því að ástunda grimmt sjálfshatur og sjá nasisma og rasisma í öllu, má kannski fá fyrirgefningu synda sinna. 

Amy Coney Barret gerðist sek um að ættleiða tvö sólbrún börn.

Some White colonizers "adopted" Black children. They "civilized" these "savage" children in the "superior" ways of White people, while using them as props in their lifelong pictures of denial, while cutting the biological parents of these children out of the picture of humanity.

Ég tek fram að mörgum til vinstri finnst of langt gangið.

Benedikt Halldórsson, 28.9.2020 kl. 10:41

5 Smámynd: Hörður Þormar

Amy Coney Barrett er sjö barna móðir, þar af eru tvö ættleidd frá Haiti. Yngsta barnið sem hún fæddi er drengur með downs heilkenni.

Barrett er sögð íhahdssöm og kaþólsk. Það mætti spyrja sig um hvort það var ekki einmitt þess vegna sem þessi sonur hennar fékk að líta dagsins ljós.

Ýmislegt má segja um Donald Trump, en ég tel að þarna hafi hann valið sterka og heilsteypta konu í röð æðstu embættismanna Bandaríkjanna. 

Hörður Þormar, 28.9.2020 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband