Þriðjudagur, 22. september 2020
Veiran þjappar saman pólitíkinni
Ólíkt hruninu 2008, sem splundraði pólitíkinni hér á landi, þá þjappar farsóttin 2020 saman pólitíska litrófinu.
Hrunið framkallaði niðurbrot þar sem hver höndin var uppi á móti annarri. Á meðan hrunið var manngerðar hamfarir er veiran utanaðkomandi ógn.
Það verður minna svigrúm fyrir pólitíska sérvisku, meiri áhersla á það sem sameinar.
Fátt er svo með öllu illt að ei boði nokkuð gott.
Allir flokkar í samstarf á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Held að þetta tengist fremur örvæntingu þorpsbúa vegna þeirra illvígu katta- og húsflugnafaraldra sem hafa hrjáð þá í sumar. Ekki annað að gera en leggja vopnin til hliðar og taka saman höndum gegn þessum ægilegu kvikindum!
Þorsteinn Siglaugsson, 22.9.2020 kl. 16:34
Samsekt getur stundum komið sér vel.
Ragnhildur Kolka, 22.9.2020 kl. 18:14
Þegar vinstri flokkar eru búnir að koma fjármálum sveitarfélaga í kalda kol, neyðast þeir til að sækja aðstoð frá hægri.
Gunnar Heiðarsson, 23.9.2020 kl. 07:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.