Mánudagur, 7. september 2020
Verðmæti: ungmenni og ferðamaður
Verðmæti erlends ferðamanns er sækir Ísland heim er hægt að reikna út frá meðaltali. Sérhver ferðamaður skilar að meðaltali svo og svo mörgum krónum. En hvert er verðmæti skólagöngu ungmennis?
Unglingur í framhaldsskóla ver drýgstum hluta dagsins í skólanum við nám og samskipti við jafnaldra sína. Ekki er hægt, svo vit sé í, að setja krónur og aura á skólavist unglings.
Það sem af er hausti býr allur þorri íslenskra ungmenna við skerta skólavist. Í flestum tilvikum er skólagangan skert um 50%. Fjarnám bætir upp að nokkru, skólar kenna sama námsefnið. En fjarnám bætir ekki upp glataða samveru jafnaldra. Félagslíf verður ekki stundað í fjarnámi, svo heitið geti.
Því fyrr sem skólastarf kemst í samt horf því betra.
Þetta er náttúrlega áfall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er það virkilega svo mikið áfall fyrir unglinga að fá ekki að kássast saman í nokkra daga? Þau eru hvort eð er alltaf í símanum í stöðugu sambandi. Túristar eru hins vegar í fæstum tilfellum í nánum sambandi við innfædda. Nema náttúrlega þeir séu fótboltamenn.
Ragnhildur Kolka, 7.9.2020 kl. 16:13
Góður, Ragnhildur.
Páll Vilhjálmsson, 7.9.2020 kl. 16:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.