Miðvikudagur, 19. ágúst 2020
Harðstjórar eða stjórnleysi; Trump og ESB
Vesturlönd standa einatt frammi fyrir sama vanda þegar harðstjórar eiga í hlut. Hvort er skárra að leyfa harðstjóranum að fara sínu fram og sjá í gegnum fingur sér þótt kosningar, löggjöf og dómstólar séu ekki upp á vestræna háttu eða styðja byltingu, sem oftar en ekki leiðir til stjórnleysis og blóðsúthellinga?
Ef vestræn ríki styðja byltingu bera þau ábyrgð á niðurstöðunni, sem einatt er sýnu verri en harðstjórnin mælt í mannslífum.
Byltingar leiða bæði fram það besta og versta í mannkindinni. Í húfi er grunnskipulag samfélagsins og fyrir það er fólk tilbúið að deyja og drepa.
Eftir algjörlega misheppnuð byltingarævintýri í miðausturlöndum og Úkraínu á þessari öld héldu vestræn ríki að mestu að sér höndunum þegar tækifæri gafst til að steypa meintum harðstjóra í Venesúela. Þar er um að ræða bakgarð Bandaríkjanna og Trump reyndist hófstilltur.
Hvíta-Rússland er í bakgarði Rússlands. Evrópusambandið er aftur herskátt og vill gera byltingu. Í kaupbæti versna samskiptin við Rússa og það þéttir raðirnar í Brussel. Ekkert sameinar hraðar og betur en sameiginlegur óvinur.
ESB viðurkennir ekki kjör Lúkasjenkós | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enn og aftur góður Páll.
Þú ert jafnvel að verða djúpvitur.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 19.8.2020 kl. 15:31
ESB tekst eflaust að finna upp refsiaðgerðir með alskyns undanþágum fyrir Þýzkaland en afar slæm áhrif á viðskipti Íslands einsog þeim tókst að gera vegna Krímsskagans.
Nú reynir á hvort Gulli hegðar sér einsog Gunnar Bragi
Grímur Kjartansson, 19.8.2020 kl. 16:00
Èg hlustaði í dag á Útvarp Sögu, á viðtal Péturs Gunnlaugssonar við Hauk Hauksson í Moskvu.
Mér skildist að Rússar óttuðust "yfirgang" EU, og þá sérstaklega Pólverja. Pólverjar hefðu nefnilega í hyggju að endurreisa sitt forna veldi og leggja Hvíta-Rússland og jafnvel Úkrainu undir sig. Þetta þótti mér merkilegt og jafnframt "ógnvænlegt", vitandi af 20 þúsund Pólverjum á Íslandi
Það kom fram hjá Pétri að fleiri hefðu verið drepnir í óeirðunum í Frakklandi síðastl. vetur heldur en í Hvíta Rússlandi, núna um daginn. Er Macron Frakklandsforseti kannski meiri harðstjóri heldur en Alexander Lukashenko? Svo að ég minnist nú ekki á "ljúflinginn", hann Pútín "okkar".
Ég mæli með þessu viðtali.
Hörður Þormar, 19.8.2020 kl. 22:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.