Laugardagur, 8. ágúst 2020
Norskur dugnaður, íslensk vertíð
Bandarísk kona, búsett í Noregi, þakkar norskri hefð hveru vel landið kemur undan farsótt. Hefðin nefnist einu orði, dugnad eða dugnaður. Norðmenn kalla það dugnad þegar samfélag (íþróttafélag, bæjarhverfi eða landshluti) leggst á eitt að koma einhverju í framkvæmd sem horfir til heilla.
Íslendingar búa að sömu hefð. Ótal framkvæmdir hér á landi eru unnar í sjálfboðavinnu af fórnfúsu fólki. En við höfum ekkert orð yfir hugarfarið að baki, segjum einfaldlega að eitthvað sé unnið í sjálfboðavinnu.
Aftur eigum við annað orð yfir átaksverkefni, vertíð. Það er vertíð þegar bjarga þarf verðmætum.
Nú stendur yfir farsóttarvertíð.
Smitrakningateymið verður þrefaldað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.