Fimmtudagur, 23. júlí 2020
Vísindi og mótsögn Menóns
Vísindamenn ,,sammæltust" um að maðurinn hafi ekki komið til Ameríku fyrr en undir lok síðustu ísaldar, fyrir um 11500 árum, segir í viðtengdri frétt. Voru ,,aðrar kenningar að mestu leyti afskrifaðar sem óáreiðanlegar og hættu fornleifafræðingar að leita merkja um undanfara."
Vísindalegri aðferð, eins og hún er í reynd, er þarna ágætlega lýst. Það er haft fyrir satt sem vísindamenn sammælast um hverju sinni, á grundvelli gagna. Menn hætta að leita að gögnum sem vefengja viðurkennd sannindi.
Í samræðu Platóns, Menón, er þekkingarleit kynnt sem mótsögn. Maður leitar ekki að því sem maður veit hvað er. Ef maður leitar að því sem maður ekki veit hvað er þá finnur maður það ekki.
Tilgátur í vísindum brúa bilið milli þess sem vitað er og þess sem er óþekkt, ekki vitað. Vaninn er sá að gögn finnast, oft fyrir tilviljun, - menn voru jú ekki að leita - sem ekki samrýmast viðteknum sannindum. Úr verður tilgáta: maðurinn kom fyrr til Ameríku en áður var haft fyrir satt.
Öll vísindi eru þessu marki brennd. Þau eru þekking með fyrirvara. Vísindin eru aðferð en ekki niðurstaða.
Til Ameríku miklu fyrr en talið var | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kynþættirnir komu allir úr sitthvorri áttinni utan úr geimnum á mismunandi tímum. (Það var engin apaþróun).
Hvíti kynstofninn kemur fyrst til jarðarinnar fyrir ca.300.000 árum
og sest að í heimsálfunni ATLANTIS sem að er nú sokkið í sæ
en var áður þar sem að nú er ATLANTSHAF.
Þó svo að höfuðstöðvar ATLANTIS hafi verið í ATLANTIS
að þá voru ATLANTISBÚAR með bækistöðar í mörgum löndum; t.d. USA.
Jón Þórhallsson, 23.7.2020 kl. 10:05
Það leiðréttist hér með að það var maður að nafni ATLANT sem að fann heimsálfu hér á jörðu sem að hann skýrði í höfuðið á sjálfum sér ATLANTIS
31.000 BC. en ekki fyrir 300.000 árum .
Jón Þórhallsson, 23.7.2020 kl. 10:17
Líklegt að mikill fróðleikur um forvera okkar hafi tapast þegar bókasafnið í Alexandríu var brennt til grunna.
Kolbrún Hilmars, 24.7.2020 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.