Laugardagur, 4. apríl 2020
Spilling í hælisiðnaði: vinir á Íslandi
Um sex til átta milljarðar króna fara árlega í hælisþjónustu við fólk sem á fæst erindi hingað til lands. Lögfræðingar eru í atvinnubótavinnu sem almannatenglar fyrir tiltekna hælisleitendur og koma þeim í fjölmiðlaviðtöl, gjarnan með tárvot augu.
Á félagsmiðlum krefjast menn að þessi eða hinn tiltekni vinur úr hópi hælisleitenda fái inngöngu í íslenska velferðakerfið. Það er orðið svo naumt með afsakanir að nú heitir það að viðkomandi fái ekki útrás fyrir kynhneigð sína í heimalandinu. Óskýr kynvitund er önnur afsökun. Eins og við eigum ekki nóg með þá íslensku ríkisborgara sem vilja vera karl í dag, kona á morgun og þriðja kynið eftir helgi.
Vinahygli er spilling þegar opinbert fé á í hlut. Íslenskir vinir hælisleitenda ættu að hjálpa þeim að eiga líf í heimalöndum sínum og láta af áníðslu á ríkissjóð sem er tómur. Og kannski minnast þeirra milljóna flóttamanna víða um heim sem ekki eiga vin á Íslandi.
Atvinnubótavinnu lögfræðinga sem almannatengla hælisfólks ætti að linna. Það er eftirspurn eftir sendlum hjá veitingamönnum sem stunda heimaþjónustu. Atvinnubótalögfræðingarnir gætu farið í þau störf. Kannski sæu þeir alvörutár.
Breytt mat gæti haft áhrif á 225 hælisleitendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hælisleitendur eru klókir. Dæmi eru um, allavega á meginlandinu, að lansbörn séu notuð sem aðgangsmiðar. Kynhneigð er annað. Þar er reynt að spila á pólitísku rétthugsunina. Skýrasta dæmið er einstaklingur sem fékk hæli vegna samkynhneigðar, en endaði þó óvart í tvígang með að nauðga stúlkum í höfuðborginni.
Hann átti sér að sjálfsögðu klapplið auðtrúa einfeldninga og feisbúkkaktívista hér, sem hjálpaði með vísað.
Jón Steinar Ragnarsson, 4.4.2020 kl. 16:24
Langtímamarkmiðið er að leggja niður þjóðir og landamæri.
Viðbrögð fólksins sem tekur þátt í niðurrifinu eru sjálfhverf eins og við er að búast.
Hvorki á Íslandi né annarsstaðar á vesturlöndum er nokkur áhugi venjulegra kjósenda að leggja niður þjóðríki sitt. Óheiðarlegt fólk og þjálfaðir lygarar, er í þykjustuleik "hjálparstarfs" sem allir sjá í gegnum en nú er komið nóg af lygum. Við eigum nóg með veiruna.
Benedikt Halldórsson, 4.4.2020 kl. 16:38
Þetta Óheiðarlega fólk er að hleipa yllu blóði í marga landsmenn með aðstoð sinni við innflutning á meðal annars öfugu fólki.
Rugluhausar sem að stóðu að gerningi útlendingalaganna ættu að vera dregnir fyrir dóm fyrir óþjóðhollustu
Óskar Kristinsson, 4.4.2020 kl. 19:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.