Fimmtudagur, 2. apríl 2020
Afsláttur af lífskjörum er óhjákvæmilegur
Efnahagssamdráttur verður líklega á bilinu fimm til tíu prósent árið 2020. Lífskjör versna sem því nemur.
Krónan í gegnum lægra gengi jafnar byrðunum að einhverju leyti. Ríkissjóður verður rekinn með halla til að borga laun fyrirtækja án tekna.
Ef Eflingar-línan verður ráðandi í ASÍ-félögum verður atvinnuleysi meira en ella.
Stundum eru aðeins vondir kostir. Þá er að velja þann illskásta.
Gefi ekki afslátt af kjörum félagsmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gríðarlegur samdráttur er óumsemjanlegur. Þótt farið sé í verkfall fæst hann ekki að samningaborðinu. Kaupmáttur launa mun minnka mikið hvort sem okkur líkar betur eða verr, annað hvort með gamaldags gengisfellingu eða með umsemjanlegri þjóðarsátt.
Benedikt Halldórsson, 2.4.2020 kl. 11:11
Hjúkrunarfræðingar eru hetjur eins og sjómenn hér áður fyrr. En, það er svartnætti framundan ef ALLAR samninganefndir verkalýðsfélaga vilja fleiri verðminni krónur í miðjum faraldri sem engin veit hversu illa fer með þjóðartekjur. Er ekki betra að fresta öllum "samningum" á meðan hörmungar ganga yfir. Um hvað á að semja? Það er engin stétt stikkfrí, ekki einu sinni hetjur.
Benedikt Halldórsson, 2.4.2020 kl. 15:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.