Fimmtudagur, 19. mars 2020
Vald, traust og sérfræðiþekking
Það er ekki hægt að vera sérfræðingur í því sem ekki er vitað. Það er einfaldlega mótsögn. Í tilfelli farsóttarinnar, sem kennd er við COVID-19, veit enginn hvenær hún mun ná hámarki, hver dauðatollurinn verður og enn síður er vitað um efnahagslegar afleiðingar.
Þetta gildir bæði um Ísland og heiminn í heild sinni.
Sérfræðiþekking á sviði faraldsfræða og tölfræði meta líkur hvenær sóttin nær hámarki, út frá gefnum forsendum. Líkurnar eru upplýst ágiskun, ekkert meira. Hagfræðingar eru í algjöru myrkri um sínar spár, þær eru ekki einu sinni upplýst ágiskun heldur skot út í loftið.
Þrátt fyrir óvissuna, eða kannski einmitt vegna hennar, verður að treysta yfirvöldum til að taka ákvarðanir í þágu almannahagsmuna. Ef við treystum ekki yfirvöldum blasir við óreiða og samfélagsupplausn. Ótti og óreiða ofan í farsóttina er eitruð blanda sem enginn ætti að brugga.
Farsóttin er staðreynd og það er óvissa framundan. Tíminn einn leiðir í ljós hvað verður. Og, eins og Færeyingar segja, tíminn er nægur - það kemur alltaf meira af honum.
218.815 smitaðir, 84.114 hafa náð sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Páll.
Það ríkir nú þegar ótti meðal almennings og hann er til kominn vegna vantraust á "yfirvöldum".
Það er enginn munur á þessu núna, og því sem menn héldu að þeir hefðu sérfræðinga til að kljást við 2007-2008. Þeir voru ekki sérfræðingar. Og það eru þeir heldur ekki í dag.
Yfirvöld eiga ávallt heima í stöðu hins grunaða; á sakamannabekk, uns annað sannast. Enginn ætti að treysta þeim í blindni. Það veitir þeim aðhald.
Maðurinn sem hélt að hann vissi allt og viðurkenndi ekki að um óþekkt líkindi er að ræða, stendur nú með 80 ný smit á tröppum sínum í dag. Hann þekkti ekki muninn á áhættu og óvissu, nákvæmlega eins og fjármála- og bankamenn okkar 2007.
Og svo lengi sem stjórnmálamenn okkar halda að hlutverk þeirra sé að þegja á meðan "sérfræðingar" sem eru ekki "sérfræðingar" vinna ranga vinnu, þá mun þetta ekki enda vel.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 19.3.2020 kl. 11:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.