Mánudagur, 24. febrúar 2020
Litlu mafíurnar og heimatilbúnar hamfarir
Verkalýðsfélög á Íslandi eru litlar mafíur sem reglulega taka í gíslingu velferð og heilsufar þjóðarinnar. Mafíurnar standa fyrir viðvarandi Sturlungaöld á vinnumarkaði þar sem hégómi og fordild fárra bitnar á almenningi.
Ósvífni mafíósanna vex í réttu hlutfalli við stöðu þeirra til að valda sem mestum skaða.
Fyrirhugað verkfall sjúkraliða er grafalvarlegt mál sem kemur niður á viðkvæmu heilbrigðiskerfi sem þolir litlar breytingar.
Tilvitnunin er höfð eftir einum foringjanum sem kalt og yfirvegað ætlar að tefla heilsufari samborgara sinna í tvísýnu.
Á bakvið foringjana standa fámennir öfgahópar. Forysta Eflingar náði kjöri í kosningum þar sem 8 prósent, já átta prósent, félagsmanna tók þátt.
Löngu tímabært er að almannavaldið, alþingi, grípi í taumana og tryggi samfélagsfriðinn. Með lögum mætti setja skorður við mafíustarfseminni. Til dæmis að allir heilbrigðisstarfsmenn, sem vinna fyrir ríkið, skuli vera í einu stéttafélagi. Til dæmis að bannað verði að einstök verkalýðsfélög einoki heilar starfsgreinar og afnema þá skyldu launþega að greiða félagsgjöld til mafíunnar.
Súrefnið sem litlu mafíurnar þrífast á er umburðalyndi. Það er þrotið.
Grafalvarleg staða uppi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.