Föstudagur, 21. febrúar 2020
Ísland flytur inn evrópsk vandamál - vottorð fyrst, svo sæstrengur
Á pappírunum er Ísland orkusóði. Við framleiðum - á pappírunum - orku úr kjarnorku og kolum. Allir heilvita vita að svo er ekki. En ESB-pappírar segja annað; Ísland er orkusóði.
Raforkufyrirtæki á Íslandi græða á þessum pappírum. Þeir selja vottorð, sem eru enn aðrir pappírar, til fyrirtækja í Evrópu um að íslensk raforka komi við sögu í starfseminni. En það fer engin íslensk raforka til Evrópu, bara pappírar.
Samorka græðir á þessum siðlausu viðskiptum. Réttlætingin er þessi: ,,Kerfið var sett á laggirnar til þess að stuðla að auknu vægi endurnýjanlegrar orku í Evrópu."
Sjá menn ekki skriftina á veggnum? Við seljum vottorð til Evrópu um að fyrirtæki í álfunni noti íslenskt rafmagn.
Fyrr heldur en seinna verður sagt í Brussel: þið Íslendingar, sem seljið evrópsk vottorð um íslenska orku á meginlandi Evrópu verðið að gjöra svo vel að tengja veruleikann við vottorðin - MEÐ SÆSTRENG.
Í boði þingmanna Sjálfstæðisflokksins var 3. orkupakki ESB illu heilli samþykktur á alþingi á síðasta ári. Það þýðir að laga- og regluverkið fyrir sæstreng er komið í íslensk lög.
Sjaldan hafa jafn fáir gert þjóðinni jafn mikinn skaða.
Eru ekki að kaupa sér syndaaflausn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Blekkja Svíkja Stela.
Óskar Kristinsson, 21.2.2020 kl. 15:56
Eg á við Íslenska ráðamenn, allsstaðar blekkingavefurinn
Óskar Kristinsson, 21.2.2020 kl. 18:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.