Óvart fjöldamorðingjar

Íran játar skjóta niður farþegaflugvél og drepa 176 manns en segir það óvart. En það er ekkert óvart við fjöldamorð klerkastjórnarinnar heldur yfirlýst stefna. Íran, sem ekki á landamæri að Ísrael, hótar reglulega að gjöreyða Ísraelsríki, síðast fyrir 4 dögum.

Múslímar skiptast í tvær meginhreyfingar, súnna og shíta. Öfgaútgáfa súnna er Ríki íslams; klerkaveldið í Íran er shíta-öfgar. Öfgarnar berjast innbyrðis en hafa fjöldamorð sem yfirlýsta stefnu gagnvart vesturlöndum almennt og Ísrael sérstaklega.

Múslímar í miðausturlöndum eru ánetjaðir miðaldahugsun þar sem trúin er miðlæg í samfélaginu. Vestræn mannréttindi, t.d. jafnrétti kynjanna, kynfrelsi og trúfrelsi eru þeim framandi. Engir nema múslímar sjálfir geta leyst úr sínum málum. 

Tveir ásar átakanna eru á milli súnna og shíta annars vegar og hins vegar milli múslíma í heild og vesturlanda. Í augum vesturlanda er Ísrael eins og hvert annað þjóðríki með réttindi og skyldur í alþjóðlegu samfélagi. Þorri múslíma lítur aftur á Ísrael sem aðskotahlut í samfélagi rétttrúaðra. Trúarmenning múslíma leyfir ekki blæbrigði sem eru inngróin í vestræna menningu. 

Öfgaútgáfur múslíma, Ríki íslams og Klerka-Íran, þrífast í skjóli trúarmenningar sem er ósamrýmanleg vestrænni menningu. Verkefni næstu ára og áratuga er að leyfa múslímum fyrir botni Miðjarðarhafs að greiða úr sínum málum og koma í veg fyrir að uppgjör múslíma skapi vandræði á vesturlöndum. Þetta skilja allir nema vinstrimenn og frjálslyndir sem ýmist af vangá eða hreinni heimsku halda að vestræn menning og trúarmenning múslíma séu undirflokkar fjölmenningar.

 


mbl.is Segjast hafa skotið vélina óvart niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Ef Íranar (klerkarnir) hefðu ekki notað börn til að sprengja sig í loft upp, ef "siðurinn" hefði ekki breiðst út, væri Íslam annað Íslam en það er í dag, burtséð hvað stendur í Kóraninum. Sádar fóru í "samkeppni" við Írana. 

En "frjálslyndir" ákváðu að líta á Íslam sem trú! Það var ekki nóg með að menn væru drepnir fyrir guðlast, heldur var "gagnrýni" á "Íslam" skilgreind sem íslamafóbía og rasismi og engin menning væri annarri fremri. 

Kannski óttaðist fólk að nasismi endurtæki sig? Það er kaldhæðni heimskunnar að farið var að líta á múslima sem minnihlutahóp en gyðinga í Ísrael sem heimsveldi illskunnar þótt þeir búi í pínulitlu landi sem er aðeins 25% af Íslandi, umkringdir óvinum sem reyndu ítrekað að ráða þjóðríkið Ísrael af dögum, heldur setti Hamas samtökin sér það markmið að drepa alla gyðinga. Það stendur í stofnskránni.

Klerkarnir sem líka hata homma og gyðinga, gefa Hamas samtökunum eldflaugar sem þeir dúndra á Ísrael. 

Til að gera langa sögu stutta, þá lamaðist tjáningarfrelsið og nú talar fólk bara um veðrið. 

Benedikt Halldórsson, 11.1.2020 kl. 14:27

2 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Páll 

Hér hefur þú dæmi um "Óvart fjöldamorðingjar" sem að þeir reyndu að hylma yfir.   

KV. 

Image may contain: text

Sjá einnig hérna : 

Secret Documents Show How Britain Helped the US Cover Up Its Own Plane Shooting Disaster

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 11.1.2020 kl. 17:55

3 Smámynd: Hörður Þormar

Talsmenn klerkastjórnarinnar í Íran ættu að fylgjast betur með ástandinu þar í landi.

Í nóv. og des. á síðasta ári voru mestu mótmæli í Íran síðan klerkarnir náðu völdum. Fólk mótmælti stórhækkuðu olíu- og bensínverði sem lagðist á byrðar fólks sem margt lifir við hungurmörk. Klerkunum er meira í mun að gefa Hamas, Hisbolla o. fl. "góðgerðastofnunum" eldflaugar og önnur vopn heldur en að sinna þörfum almennings í sínu eigin landi.  

Mótmælin á síðasta ári voru brotin niður og munu um 1500 mótmælendur hafa látið lífið í aðgerðum byltingarvarðanna undir stjórn hins "sárt tregaða" leiðtoga Soleimani. Aðgerðirnar fólust m.a. í því að þyrlur skutu á fólkið sem var að mótmæla.

Nú er aftur farið að mótmæla, enda sér fólk í gegnum lygavef klerkanna, en búast má við þessi mótmæli verði líka kæfð í blóði.

Hörður Þormar, 11.1.2020 kl. 20:41

4 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Ætlaði einmitt að fara að visa i þessa heilogu USA i samb við þessa flugvel sem þ skutu niður en eg se að það er buið að þvi.

Þa vil eg minnast a annað. 

Ukrainska celinn M 17  sem v skotin niður i Ukrainu er EINS OG FORSETA FLUGVEL PUTINS.

HVIT MEÐ BLARRI OG RAUÐRI ROND EFTIR SKROKKNUM.

Þegar su vel var skotin niður að þa var PUTIN Russl forseti að koma heim til Russl a sama tima eftir HM i BRASILU..

2 ukrainskar orustu þotur komu aðvifa að M 17 AÐUR EN VELIN VAR SKOTIN NIÐUR.

Hægt að fara a google image og bera velarnar samann.

Kv

Lig

Lárus Ingi Guðmundsson, 11.1.2020 kl. 21:50

5 Smámynd: Hörður Þormar

Hörður Þormar, 11.1.2020 kl. 22:03

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Helga Vala er hin dæmigerða víðsýni nútíma Íslendinga

Halldór Jónsson, 11.1.2020 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband