Föstudagur, 13. desember 2019
Þjóðhyggja sigrar í Bretlandi
Íhaldsflokkurinn lagði England að fótum sér og gekk af ESB-væddum Verkamannaflokki dauðum. Hægribylgjan í Englandi er í ætt við stefnu Miðflokksins hér á landi. Þjóðhyggja sigraði einnig í Skotlandi, undir forystu Nikkólu Sturgeon, sem er Ögmundur Jónasson þeirra Skota.
Hreini ESB-flokkurinn, Frjálslyndir, engilsaxnesk Viðreisn, galt afhroð.
Ensk þjóðhyggja tryggir Brexit, útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Skosk þjóðhyggja setur úrsögn úr Bretlandi á oddinn og vill nota aðild að ESB til að tryggja hana.
Corbyn ekki sætt ef útgönguspár rætast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Vonandi geta þjóðhollir hægri og vinstri menn á Íslandi sameinast um að verja sjálfsstæðið. Annars hafa þeir ekkert til að deila um.
Benedikt Halldórsson, 13.12.2019 kl. 07:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.