Mánudagur, 9. desember 2019
RÚV er meinsemd í tvennum skilingi
RÚV er risinn meðal íslenskra fjölmiðla. RÚV er eini fjölmiðillinn sem fær beint framlag úr ríkissjóði sem tryggir yfirburðastöðu. Í þessum skilningi er RÚV rekstrarleg meinsemd.
Yfirburðir á fjölmiðlamarkaði tryggja RÚV dagskrárvald í opinberri umræðu sem enginn annar fjölmiðill nýtur. Sterkt dagskrárvald notar RÚV til að hanna fréttaflutning sem stenst ekki lágmarkskröfur um fagmennsku. Í stað þess að segja fréttir, býr RÚV til ,,umræðu".
Misnotkun á dagskrárvaldi er sýnu alvarlegra brot en að vera í markaðsráðandi stöðu. En til að hemja umræðusýki RÚV verður að jafna leikvöllinn þannig að RÚV fái ekki forskot frá ríkinu á aðra fjölmiðla.
Telur frumvarp andvana fætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er margt til í þvi að RÚV sjonvarp sé "fíllin í stofunni".
Það er ekki nógu gott ef að sá miðill sem að á að
leiða þjóðina hinn rétta veg inn í framtíðina;
sé í raun að auka á ringlureiðina
í öllum sínum dagskrárliðum.
=Ringulreiðin er orðin alger í allri dagskránni á rúv.
Ég myndi vilja sjá forseta íslands
spyrja þjóðina sína einhverrar spurningarum eitthvað.
Hvernig myndi hann forgangsraða í sjónvarpsdagskránni á rúv
ef að hann fengi að vera útvarpsstjórinn?
Jón Þórhallsson, 9.12.2019 kl. 13:18
Menntamálaráðherra, ef þú tekur ekki djarflega á RÚF verður þú merktur sem spillingarmeistari!!!
Óskar Kristinsson, 9.12.2019 kl. 14:03
Það vantar almenna umræðu um það hvað fólk vil sjá meira af
og hvað mætti missa sín?
Jón Þórhallsson, 9.12.2019 kl. 14:18
Einu sinni þótti sjálfsagt að gera ráð fyrir ólíkum sjónarmiðum. RÚV átti að vera allra landsmanna, en gerir ekki lengur greinarmun á heiminum eins og hann er og einhliða skoðunum / áróðri þeirra sem ráða ferðinni.
RÚV er einskonar "gullfótur" sem allir miða við. Sá sem ætlar í pólitík eða vill verða "númer" í samfélaginu, ritskoðar sjálfan sig til að þóknast RÚValdinu.
Benedikt Halldórsson, 9.12.2019 kl. 14:56
Það eru allskyns kynningar á dagsksrárliðum í rúv; sem að eru farnar að yfirtaka alla dagskrána; og þær eru settar fram á svo miklum hraða;
þannig að það er heilaskemmandi að horfa í sjónvarpið:
Það er verra ef að þessum SÁLFRÆÐIHERNAÐI
er beitt vísvitandi til að forheimska fólk og valda andlegum kvillum:
https://www.youtube.com/watch?v=UK8MJVQVRo8&feature=emb_logo
https://www.facebook.com/thealmightyjah/videos/547106685653876/
Jón Þórhallsson, 9.12.2019 kl. 15:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.