Föstudagur, 1. nóvember 2019
Skytturnar þrjár og alþjóðaskrímslið
Trump, Johnson og Farage leggja til atlögu við Evrópusambandið. Hólmgangan er í Bretlandi. Markmiðið er bjarga eyríkinu frá alþjóðaskrímslinu.
Eins og skrímsla er háttur birtist það í mörgum myndum, gjarnan með skammstöfunum: ESB, SÞ, Nató og loftslagsvá.
Hetjurnar hugrökku eru aftur með nafni og kennitölu.
Alþjóðpólitík lýtur sígildum lögmálum sagnanna. Hans og Gréta báru nöfn og persónueinkenni. Vonda stjúpan og nornin í skóginum voru nafnlaus illska.
Trump gagnrýnir Brexit-samning Johnson | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Svo skörp fyrirsögn!
Helga Kristjánsdóttir, 1.11.2019 kl. 07:53
Það er vægast sagt erfitt að eiga "samræður" við ósýnileg skrímsli sem þó hafa skoðanir á allt og öllu og ofurríkan vilja og flottar skammstafanir.
Í tilfelli Íslands eigum við að gera landamæri okkar hindrunarlaus og galopinn fyrir - hvern? Fulltrúar ósýnilegu skrímslanna hér á landi geta ekki svarað neinni spurningu milli þess sem þeir þeytast um heiminn á þotum á ráðstefnur og enn fleiri ráðstefnur. Til að? Jú, gera skal heiminn að einum stórum leikvelli fyrir þá sem engin kaus en hafa keypt sér völd í gegnum vinstri sinnaðar hreyfingar sem vilja bylta heiminum...
Nú eru börn þeirra sem vildi að vesturlönd legðu niður einhliða vopn, þegar Sovétríkin voru voldugust, tekinn við veruleikafirrta keflinu.
Benedikt Halldórsson, 1.11.2019 kl. 08:42
Það versta er að fólkið sem er að leiða okkur til ósjálfsstæðis notar gáfur sínar og tengslanet til að ná settu marki. Að sjálfsögðu þykir það "trúverðugt" þegar svo að segja "allir" í menningunni og á fjölmiðlum trúa nákvæmlega því sama, hafa sömu eyrun, sömu augun, sama munninn og segja það sama frá orði til orðs.
Eða, er það ekki einmitt til marks um að hér sé kominn "költhreyfing" en hingað til hafa íslendingar alltaf verið ósamma um allt. Af hverju hætti fólk allt í einu að stunda heilbrigðar illdeilur að þjóðlegum og góðum íslenskum sið.
Benedikt Halldórsson, 1.11.2019 kl. 13:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.