Miðvikudagur, 23. október 2019
Evrópskt réttlæti
Harðir fangelsisdómar spænska ríkisins yfir katalónskum þingmönnum virðast ekki hreyfa við evrópskum stofnunum er tilsjá hafa með lögum og rétti í álfunni.
Vinstrimenn hér á landi, ESB-sinnar og glæpamenn úr auðmannastétt líta gjarnan austur eftir fyrirmynd réttarríkisins.
Í máli katalónsku þingmannanna blasir við að þeir hljóta langa fangelsisdóma fyrir pólitíska sannfæringu. Helvíti hart og trauðla til fyrirmyndar.
Hlýtur að vekja athygli og umhugsun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hefur síðuhafa ekkert flogið í hug að það eru þeir sem telja á sér brotið sem vísa málum til dómstóla, t.d. Mannréttindadómstólsins. Dómstólar taka yfirleitt ekki mál fyrir að eigin frumkvæði. Eða hélstu að það væri þannig alls staðar annars staðar en í hinni hræðilegu Evrópu væni?
Þorsteinn Siglaugsson, 23.10.2019 kl. 08:28
Menn hafa nú safnast saman og barið bumbur af minna tilefni.
Ragnhildur Kolka, 23.10.2019 kl. 08:51
Leiðtogar Skoskra sjálfstæðissinna í fangelsi og Bresk óeirðalögregla beitir mikilli hörku á götum Glasgow..Alveg eins...
Guðmundur Böðvarsson, 23.10.2019 kl. 10:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.