Þriðjudagur, 10. september 2019
RÚV er skandalfréttastofa
RÚV leitar uppi skandalfréttir til að réttlæta tilveru sína. Þegar sérstaklega stendur á boðar RÚV til fundar á Austurvelli til að valdefla múginn.
Fyrr á tíð, þegar dagblöðin voru flokksmálgögn, stóð RÚV fyrir hlutlægni og yfirvegun, forðaðist hávaðafréttamennsku. En eftir dauða vinstridagblaðanna Þjóðviljans, Alþýðublaðsins og helgarútgáfu sem spratt úr sama jarðvegi og lengi hét Helgarpósturinn fyllti RÚV upp í tómarúmið og varð vinstramálgagn.
Ríkissjóður á ekki að fjármagna skandalfréttastofu sem í ofanálag situr yfir hlut annarra fjölmiðla á auglýsingamarkaði.
Samskipti frétta- og heimildarmanna verði skoðuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það vantar alltaf röddina sem að á að færa okkur VONINA!
Svipað og ef að Indiana Jones starfaði á RÚV
að þá myndi hann leggja af stað með eitthvert göfugt MARKMIÐ í huga
sem að ætti að leiða til einhverskonar sigurs/ hamingju fyrir sína þjóð;
eins og að finna SÁTTMÁLSÖRKINA;
Hann myndi ekki byrja daginn á því að leita að ógæfu-atburðum.
Jón Þórhallsson, 10.9.2019 kl. 18:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.