Betri rök fyrir ESB-umsókn en orkupakka 3

Þegar alþingi samþykkti ESB-umsókn Samfylkingar 16. júlí 2009 var rökstuðningurinn betri en þau rök sem fylgdu samþykkt 3. orkupakkans.

,,Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra sagði málið snú­ast um þátt­töku í EES-samn­ingn­um," segir í viðtengdri frétt.

,,Við erum hrædd," er annað orðalag yfir sömu hugsun. 

Hrædd við hvað? Hrædd við að standa á eigin fótum og hafa íslenskt forræði yfir náttúruauðlindum þjóðarinnar.

Þeir 46 þingmenn sem samþykktu orkupakka þrjú eiga ekkert erindi á alþingi Íslendinga.


mbl.is Þriðji orkupakkinn samþykktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hárrétt hjá þér að vanda kæri Pall .

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.9.2019 kl. 13:06

2 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Íslandspóstur var að segja upp fólki. Bréfberar voru of margir. Þingmenn eru eins og bréfberar, þeir bera út póstinn sem kemur að utan en hafa enga skoðun á innihaldinu frekar en venjulegir bréfberar. Með aukinni sjálfvirkni ákvarðana má fækka þingmönnum um svona 40 til að byrja með. 

Benedikt Halldórsson, 2.9.2019 kl. 15:29

3 Smámynd: Tryggvi Helgason

Í stefnuskrá Fullveldisflokksins er gerð tillaga um, að Alþingismenn verði 24, einn í jafnmörgum einmennings kjördæmum. "fullveldisflokkurinn.net".

Tryggvi Helgason, 2.9.2019 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband