Gulli skilur ekki utanríkismál

Þjóðríki sem vill gera sig gildandi á alþjóðavettvangi þarf að eiga tvennt, herafla og peninga. Bandaríkin eru stórveldi enda eiga þau hvorutveggja. Noregur á peninga og skipti máli um tíma í deilum múslíma og Ísrael fyrir botni Miðjarðarhafs.

Gulli utanríkis skilur ekki málaflokkinn sem hann fer með í nafni íslenska lýðveldisins þegar hann telur Ísland skipta máli í óöld á Filippseyjum þar sem eiturlyf eru aflvakinn. Utanríkismál fara illa með dómgreind stjórnmálamanna. Ingibjörg Sólrún ætlaði Íslandi sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Það endaði í tárum.

Ísland á hvorki her né peninga til að þumlunga heimsmálum hingað eða þangað. Þjóðríki eiga sér ekki hugsjónir, aðeins hagsmuni. Íslenskir hagsmunir eru að fullvalda þjóðin búi í lýðfrjálsu landi. Gulli utanríkis þarf að skilja á milli eiturlyfjastríðs í Asíu og krafna ESB um ítök í orkumálum Íslands. Að reyna að hafa áhrif á annað er tilgangslaust föndur en hitt er alvörumál sem (enn) er í íslenskum höndum.

Ef Gulli vill breyta heiminum ætti hann að fara að fordæmi Sollu forvera og ráða sig í þjónustu erlendra ríkjasamtaka. Hann er liðtækur þar, eins og dæmin sanna.


mbl.is „Við munum ekkert hvika“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

"Við" fengum hlutverk í mannréttindaráðinu. Í skiptum fyrir hvað? Sæstreng? Utanríkisráðherra er ekki starfinu vaxinn sökum persónulegs metnaðar sem hann tekur fram yfir "okkar" hagsmuni sem fara alls ekki saman. 

Við erum  vopnlaus og friðsöm þjóð. Sumir eru reyndar með vasahníf á sér. Því verra sem ástandið er í Filippseyjum því meiri ástæða er til að skipta sér ekki af. 

Benedikt Halldórsson, 11.7.2019 kl. 15:19

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er hann þá með (í)réttu ráði,? "Við munum ekki hvika" > Ooó situr við hlið fulltrúa Sadi Arabíu og svarar fullum hálsi eins og segir í fréttaveitum um samskonar hetjutenóra.-Öll þjóðin roðnar- Betra að vera einangraður mikilmennskugraður. 

Helga Kristjánsdóttir, 12.7.2019 kl. 01:27

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Vantar en á milli 2ja seinustu orða.

Helga Kristjánsdóttir, 12.7.2019 kl. 01:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband