Laugardagur, 8. júní 2019
Helmingaskiptin í Sjálfstæðisflokknum og þriðji hópurinn
Helmingaskiptin innan Sjálfstæðisflokksins eru sögulega á milli velferðarfrjálslyndra annars vegar og hins vegar viðskiptafrjálshyggjumanna. Þriðji hópurinn í flokknum átti aldrei aðild að helmingaskiptunum enda í grunninn hlynntur málamiðlunum.
Þriðji hópurinn er íhaldssamur í lífsviðhorfum, tregur til átaka en er fullveldi þjóðarinnar kært.
Velferðarfrjálslyndið og viðskiptafrjálshyggjan náðu saman um EES-samninginn sem framtíðarfyrirkomulag um samskipti Íslands og Evrópusambandsins.
Þegar það rann upp fyrir þriðja hópnum að EES-samningurinn felur í sér viðtækt framsal á fullveldi þjóðarinnar, eins og best sést á 3. orkupakkanum, snerist þriðji hópurinn gegn forystu flokksins.
Og nú logar móðurflokkur íslenskra stjórnmála stafnanna á milli.
Athugasemdir
Góð greining.
Benedikt Halldórsson, 8.6.2019 kl. 20:54
Í dag er sjálfstæðisflokkurinn ekki málsvari nokkurs manns og er að fremja hægfara og kvalarfullt sjálfsmorð með glóbalistann Björn Bjarnason í skugganum.
Flokkurinn er kominn í ruslflokk og fær sömu útreið og framsókn eftir hrun. Verður á kaliberi við pírata. Ég er allavega búinn að segja bless og næsta skref er að skrá sig úr honum.
Jón Steinar Ragnarsson, 9.6.2019 kl. 01:30
Dreif í því að afmunstra mig og hvet menn til að gera það líka svo þeir finni stefnuleysið á eigin skinni. Það kaus hann enginn út á þessi svik. Vinstri grænir blikna við hliðina í að snúa stefnuskrá sinni á hvolf eftir að þeir komast á þing.
Nafn flokksins er nú hlægilegt öfugmæli og greinilega tómir idíótar að komast til forystu og metorða þar. Hef sjaldan fundið mig jafn illa svikinn.
Jón Steinar Ragnarsson, 9.6.2019 kl. 01:53
Sjálfsstæðisflokkurinn hefur svikið kjósendur sína.
Benedikt Halldórsson, 9.6.2019 kl. 05:52
Ég fékk rukkun um félagsgjald/gjöld eftir seinustu kosningar,þeir mega hafa fyrir því að rukka eða senda creditinfo,eða hvað það heitir.
Helga Kristjánsdóttir, 10.6.2019 kl. 02:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.