Múslímskt réttlæti að taka barn af lífi

Opinberar aftökur tíðkast í Sádi-Arabíu til að halda þegnunum innan ramma laga og réttar. Aftökur á börnum eru viðvarandi, samkvæmt viðtengdri frétt. Sádí-Arabía er leiðandi múslímaríki og fjármagnar moskur á vesturlöndum sem kenna súnní-útgáfu af íslam.

Íran er öflugasta ríki shíta-múslíma. Þar lokuðu yfirvöld nýlega 547 skemmtistöðum þar sem ,,íslömsk gildi" voru ekki höfð í heiðri. Menningarglæpir eins og að leika bannaða tónlist og siðleysi sem felst í röngum klæðaburði fá refsingu í múslímaríkjum.

Allt eru þetta vel þekktar staðreyndir. Trúarmenning múslíma og réttarfar þeirra er gagnólíkt vestrænum gildum. Múslímar lifa í allt öðrum menningarheimi en vesturlandabúar.

Almennt er siðum og lögum sem á þeim byggja ætlað að gera samfélög starfhæf. Sádí-Arabía og Íran eru starfhæf samfélög. 

Tvær andstæðar ályktanir er hægt að draga. Í fyrsta lagi að trúarmenning múslíma sé frumstæð og verði að nútímavæða með góðu eða illu. Írak-stríðið 2003-2010 gefur ekki til kynna að sú leið sé heppileg. Í öðru lagi að leyfa múslímum að hafa sína hentisemi heima fyrir en takmarka með öllum tiltækum ráðum að trúarmenning þeirra festi rætur á vesturlöndum. Það er bæði gerlegt og skynsamlegt.

 

 


mbl.is Biðla til stjórnvalda í Sádi-Arabíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Grínistar eru með púlsinn á "málfrelsinu". Þeir vita hvað má segja og hvað má alls ekki segja.  Á örfáum árum hefur ofstæki dilkastjórnmála (identity politics) leyst frjálslyndi af hólmi. 

Fólk er dregið dilka eða velur sér sinn heilaga dilk. Ekki má gera grín að fólkinu í heilögu dilkunum, heilagri trú þess eða heilögum lífsskoðunum. Aðeins má gera grín að ódilkaða fólkinu, óheilagri trú þess, þjóðerni þess, menningu og ættjarðarást. 

Það er ekki erfið gestaþraut að geta sér til um hvaða trú er í heilaga dilknum. Það er þykir mikil synd að segja frá því sem gerist í heilögum dilkum, jafnvel þótt það sé satt. 

Halldór Jónsson verkfræðingur benti mér á orðið dilkastjórnmál en opinber þýðing er sjálfsmyndarstjórnmál. 

Benedikt Halldórsson, 9.6.2019 kl. 09:59

2 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Það verður að brjóta upp heilögu dilkana sem er skálkaskjól skefjalaus ofbeldis og mannvonsku. Afleiðingin er m.a. að Ísrael er eina landið á stóru svæði sem má "gagnrýna". Það er skotskífa góða fólksins. 

Benedikt Halldórsson, 9.6.2019 kl. 10:35

3 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Páll,

ÞETTA ER EKKI MÚSLÍMSKT RÉTTLÆTI, heldur Wahhabism-skt réttlæti, auk þess er Wahhabism Saudi Arabíu ekki Íslam (5 things that prove Salafism-Wahhabism is not Islam).  

Ef hins vegar Íslam væri Wahhabism, þá myndu Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar ekki NOTA EÐA HAFA SAMSKIPTI við Saudi Arabíu og ISIS, þú?

Bandríkjamenn og vesturlönd þurfa því þetta öfga wahhabista -lið til að drepa Múslima í hinu svokallaða stríð ofan á frið og blóð fyrir olíu.   

Secret Pentagon Report Reveals US "Created" ISIS As A "Tool"

Ex-US Intelligence Officials Confirm: Secret Pentagon Report Proves US Complicity In Creation Of ISIS

CIA Created ISIS — Assange Drops Bombshell On WikiLeaks Release Of 500K US Cables

Declassified Docs Show That Obama Admin Created ISIS In 2012 To Use As A ‘Tool’

'CIA created ISIS', says Julian Assange as Wikileaks releases 500k US cables

Pentagon Paid PR Firm $540 Million to Make Fake Terrorist Videos

Obama Helped Save Terror Org, Turned Down Help in Fighting ISIS

KV. 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 9.6.2019 kl. 15:35

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

BRITAIN CONQUERED WITHOUT BLOODSHED 2019.

Who to blame for passively succumbed to the Muslim invasion?

Mayor of London ... MUSLIM

Mayor of Birmingham ... MUSLIM

Mayor of Leeds ... MUSLIM

Mayor of Blackburn ... MUSLIM

Mayor of Sheffield ... MUSLIM

Mayor of Oxford ... MUSLIM

Mayor of Luton ... MUSLIM

Mayor of Oldham ... MUSLIM

Mayor of Rockdale ... MUSLIM.

Over 3,000 Muslim Mosques

Over 130 Muslim Sharia Courts

Over 50 Muslim Sharia Councils

Over 20 Muslims-Only No-Go areas across the UK.

Muslim Women ... 78% don't work and

are on FREE benefits/housing.

Muslim Men ... 63% don't work and

are on FREE benefits/housing.

Muslim families of 6-8 children planning to go

on FREE benefits/housing.

Now all UK schools are ONLY serving HALAL MEAT !

All this achieved by just 4 million Muslims out of

the 66 million population!!!

JUST enjoy your last few years!!!.

Tell this to all your friends still sleeping in intellectual darkness.

This is an eye opening for all non-Muslims

 

Svíþjóð er ástandið enn verra.

 

Spurning hverjir eru að ráðast á hverja..!!

Sigurður Kristján Hjaltested, 9.6.2019 kl. 16:09

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll Þorsteinn,ekki vildi ég deila við þig munnlega um trúarbrögð,þá fer allt í steik! Telur þú að þjóðir heims séu skilgreindar eftir 5 megin trúarbrögðum og um leið siðlausar eða siðaðar. 

Helga Kristjánsdóttir, 9.6.2019 kl. 16:38

6 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Sigurður,  

Þú gleymir að minnast á hvaðan þessar fáranglegu upplýsingar eru komnar, og/eða gleymir að minnast á Fake Fact Check https://fullfact.org/news/muslims-uk-viral-poster-factchecked/, en ég bið heilsa þessum vinum þínum Zíonistum World Zionist Organization er halda öllum þessum áróðri upp.

KV.   

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 9.6.2019 kl. 17:20

7 Smámynd: Hörður Þormar

Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Ég ætla að benda þér á mann sem hefur verið mjög áberandi í umræðunni um islam í sjónvarpi, blöðum og í netmiðlum, auk þess sem hann hefur skrifað bækur um þetta efni. Hann er Egypti, en býr nú í Þýskalandi, vona ég að þú getir tekið eitthvert mark á honum.

Hér er viðtal við hann á ensku, sem tekið var fyrir nokkrum árum:                 The case against the Prophet | DW News               

Hörður Þormar, 9.6.2019 kl. 23:08

8 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Hörður, 

Þó að ég vilji hafa vinskap og/eða félagsskap við múslima , þá er engin hætta á því að ég verði múslimi. Í dag þá er hins vegar allt gert fyrir Stærra Ísrael (e. "Greater Israel") með réttlætingum, múslimahatri og lygaátyllum (e. fake pretext). Eins og  áður segir þá er verið að fara eftir Oden Yinon planinu fyrir Stærra Ísrael, nú og eins og General Wesley Clark opinberaði okkur þann 2. mars 2007, þá var planið að hefja stríð og eyðileggja Írak, Líbýu, Líbanon,  Sýrland, Súdan, Sómalíu og síðan Íran, en það búið að stúta og eyðileggja öll þessi lönd samkvæmt planinu, nema það á eftir að hefja stríð gegn Íran fyrir þeirra Stærra Zíonista Ísrael.

Related image
Related image

Hann  Wesley Clark sagði reyndar satt með þetta allt saman , en hann Clark karlinn heldur uppi þessari vefsíðu  Stop Iran War.com,  en hvað þýðir það fyrir hann Clark, að reyna stöðva næsta stríð gegn Íran í öllu þessu múslimahatri? Því eins og áður segir þá er þetta ekki stríð gegn hryðjuverkum, heldur gegn múslimum og gegn Íslam. Nú þurfa stjórnvöld í Bandaríkjunum að reyna finna einhverja góða lygaátyllu (fake pretext)  í viðbót svo hægt sé að sprengja Íran í tætlur fyrir þeirra Stærra Zíonista Ísrael, já og drepa fleiri múslima, ekki satt? .  
KV. 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 10.6.2019 kl. 10:19

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sýnist skv. skýrslum að Kína sé nú duglegast við dauðarefsingar og Og Íran í öðrusæti. Bandaríkin eru í 7 sæti og því sé ég ekki alveg hvað trú hefur með fjöldan að gera. Bandaríkin hika ekki við að dæma börn til dauða og fatlaða. Eins er Kína líklegt til að dæma fólk til dauða með upplognum sökum og var sakað um að selja líffæri úr þeim sem teknir eru af lífi. Ekkert ð draga úr ógeðinu í Sádi Arabíu og því að Bandaríkin verja ógeðið þar. En við virðumst ekkert vera að stressa okkur upp þó þessari fjölskyldu sem á Sádi Arabíu sé með aðstoð Bandaríkjana leyft að haga sér svona.

Magnús Helgi Björgvinsson, 10.6.2019 kl. 11:21

10 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

"Bandaríkin hika ekki við að dæma börn til dauða og fatlaða."

Related image

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 10.6.2019 kl. 22:23

11 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Eins og Magnús Helgi bendir á eru það ekki aðeins múslimaríki sem beita dauðarefsingum, gegn börnum, vangefnum og stjórnarandstæðingum. Það þarf því væntanlega að takmarka með öllum ráðum að menning t.d. Kína og Bandaríkjanna festi rætur?

Þorsteinn Siglaugsson, 11.6.2019 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband