Þriðjudagur, 21. maí 2019
Siðlausir Píratar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata fær á sig dóm siðanefndar alþingis að hafa brotið siðareglur sem þingmönnum er ætlað að starfa eftir.
Samflokksmaður hennar Björn Leví Gunnarsson kemur í ræðustól alþingis og fer með nákvæmlega sömu orð og Þórhildur Sunna var dæmd fyrir.
Píratar auglýsa siðleysi sitt.
Björn fór ósæmilegum orðum um Ásmund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hafa ekki einhverjir Píratar haft allgóð kynni af íslenska geðheilbrigðiskerfinu auk þess sem einhverjir þeirra hafa notið niðurgreiddrar húsaleigu sem var öðrum þurfandi ætluð? Þetta er aldeilis heilagt lið þegar kemur að því að sjá flísarnar í augum annarra.
Halldór Jónsson, 21.5.2019 kl. 15:46
Píratar njóta tjáningarfrelsis sem hægri menn njóta ekki.
Halldór Jónsson, 21.5.2019 kl. 15:47
Halldór. Hvað með hægrimenn sem eru Píratar? Hvaða tjáningarfrelsis njóta þeir að þínu mati?
Guðmundur Ásgeirsson, 21.5.2019 kl. 16:32
Er eitthvað til sem heitir hægri Pírati?
Halldór Jónsson, 21.5.2019 kl. 18:08
Halldór. Að sjálfsögðu, enda er allskonar fólk Píratar.
Hvaða tjáningarfrelsis njóta hægrimenn sem eru Píratar að þínu mati?
Guðmundur Ásgeirsson, 21.5.2019 kl. 18:13
Hægri, vinstri, látum það liggja milli hluta Guðmundur. Getur þú hins vegar upplýst hvar á skalanum 0-10 telur þú heilbrigð skynsemi leggi sig á ódrukknum Pírata í og/eða við ræðustól Alþingis?
0 = Ekki vottur af heilbrigðri skinsemi.
Benedikt V. Warén, 21.5.2019 kl. 21:08
Guðmundur, það eru engir hægri Píratar til. Það kom berlega í ljós þegar Ernu Ýr var bannað að viðra frjálslyndar skoðanir og sett í skúringar. Þá opnuðust augu þeirra sem villst höfðu inn í félagsskap Pírata.
Ragnhildur Kolka, 22.5.2019 kl. 09:41
Sé að Guðmundur finnur enga möguleika á að gefa Pírötum stig á skalanum 0 - 10.
Það er svo sem skiljanlegt, en að enginn skuli finna hjá sér hvöt til þess, er illskiljanlegt.
Greinilegt að Píratar eru orðnir vinalausir.
Benedikt V. Warén, 22.5.2019 kl. 12:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.