Fimmtudagur, 21. mars 2019
Sýndar-WOW
WOW á engar flugvélar, aðeins leigusamninga um flugvélar. Þeir sem leggja trúnað á möguleg kaup Indigo Partners á WOW, en þeim fer fækkandi, telja að WOW verði í framtíðinni sýndarfyrirtæki, í reynd aðeins farmiðasala á netinu.
Í viðskiptatímaritinu Forbes er þetta útskýrt. Indigo á fyrir flugfélögin, WIZZ og Frontier, sem skila hagkvæmari rekstri en WOW. Ef Indigo eignast WOW verður flugreksturinn lagður niður en farmiðasalan rekin áfram. Viðskiptavinir munu kaupa WOW-miða en fljúga með WiZZ-Frontier.
Sem sagt, Sýndar-WOW, fyrirtæki sem aðeins er farmiðasala á netinu.
Þegar það rann upp fyrir Skúla Mogensen hvað yrði gert við óskabarnið hans ákvað hann að láta krók koma á móti bragði, efna til sýndar-viðræðna við Indigo.
Sýndar-viðræður standa enn yfir. Fyrr heldur en seinna mætir sýndin veruleikanum, eins og blaðra sem rekst á nál.
WOW-vélar nýtast Air Canada vel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við skulum rétt vona að ríkið fari ekki í ábyrgð fyrir lánum til WOW
Gunnar Th. Gunnarsson, 21.3.2019 kl. 17:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.