Miðvikudagur, 27. febrúar 2019
Efling hótar og rógber
Efling hótar verkföllum gegn Ístak, sem varð að segja upp starfsfólki vegna slæmrar verkefnastöðu. Efling ber út róg um ferðaþjónustuna, segir formaður fyrirtækja í hótel- og gistihúsarekstri.
Hótanir og rógur eru verkfæri sem sósíalistum í Eflingu eru töm.
Hvorugt skilar launafólki betri lífskjörum. Enda stendur það ekki til. Forysta Eflingar er í pólitík, ekki kjarabaráttu.
56 missa vinnuna hjá Ístaki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Um svona viðhorf hefur Sólveig Anna þetta að segja:
Og alveg að lokum: Gangi talsmönnum óréttlætis, misskiptingar og hins falska stöðugleika bara vel að stoppa okkur. Gangi þeim vel að reyna að fá okkur til borða „uppsafnaða raunávöxtun ráðstöfunartekna“. Undrun þeirra á því að við séum ekki til í að halda áfram að þegja og vinna, undirbúningsleysi þeirra gangvart upprisunni okkar bókstaflega sannar að þau hugsuðu aldrei um okkur, vissu ekkert um okkur, höfðu engan áhuga á okkur. Láglaunakonur á íslenskum vinnumarkaði voru nákvæmlega jafn jaðarsettar og ósýnilegar og ég sagði að við værum. En við erum það ekki lengur. Og engar ósýnilegar hendur óréttlætis og arðráns geta unnið slaginn við allar sýnilegu hendurnar okkar.
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 27.2.2019 kl. 13:54
Og þetta hefur Sólveig Anna að segja um pistlaskrif Páls Vilhjálmssonar og annarra leigupenna íhaldsins
"Því allt sem á okkur hefur dunið undanfarið, allur áróðurinn um að katastrófa sé á næsta leiti fái fólk mannsæmandi laun fyrir unna vinnu, öll móðursýkin, allt uppnámið, öll harmkvælin; þetta snérist aldrei um „stöðugleika“. Raunverulegur stöðugleiki byggir á réttlæti, óréttlátt samfélag getur aldrei orðið samfélag stöðugleika. Stöðugleiki er bara orð sem fólk hefur fengið að fela sig bak við, orð sem fólk hefur notað til að breiða yfir kaldlyndi sitt í garð vinnuaflsins. Stöðugleikinn á Íslandi er, eins og ég hef margoft bent á, stöðugleiki hinna vel settu á kostnað þeirra illa stæðu. Stöðugleikinn er óréttlátur. Hann er gjafmildur og í stuði gagnvart sumum sem fá að borga sjálfum sér milljónir, jafnvel milljarða, nískur og grimmur gagnvart öðrum sem þurfa að vinna og vinna fyrir næstum ekki neitt. Íslenski stöðugleikinn er óttalegur drullusokkur. Stéttskiptingin og misskiptingin er í kjarnsýrunum hans, hann á öflugt og mikið réttlæti handa sumum, veikburða og takmarkað réttlæti handa öðrum. Og láglaunakonur á íslenskum vinnumarkaði þekkja herra Stöðugleika af vondu einu."
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 27.2.2019 kl. 14:04
Þú ert upp á síðkastið orðinn einn helzti baráttumaður gegn réttlætiskröfum verkalýðsfélaganna í þágu fólks á skammarlega lágum launum, Páll, og varst þó sjálfur sósíaldemókrati á Alþýðublaðinu á árum áður, muni ég rétt.
Farðu nú að anda svolítið rólega og getur þá m.a. litið hér á skrif fyrrverandi samherja um málin: Fólk er mjög hlynnt því að lækka útsvar í Reykjavík. Um brýnustu aðalmálin! = https://jvj.blog.is/blog/jvj/entry/2231187/
Jón Valur Jensson, 27.2.2019 kl. 14:37
Nú er ríkisskattstjóri búinn að gefa út leiðbeinandi fyrirmæli um hvernig áhrifavaldar á netinu eiga að telja fram til skatts. Nú er bara að sjá hvort Páll fer að þessum fyrirmælum eða ekki.
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 27.2.2019 kl. 15:16
Sæll Jón Valur,ekki er ég að svara fyrir síðuhafa,en minni á aö svokallaður fjórflokkur hefur aldeilis breyst svo mikið að það er ekki fyrir eldheitan íslending að fylga neinum þeirra..Með kveðju horfandi á enska fótbolta! Þess vegna kom þetta í einskonar stríðs stærð, sorry.
Helga Kristjánsdóttir, 27.2.2019 kl. 20:10
Já, mögnuð kemurðu úr boltanum, Helga
En hvað skyldi Páll vilja borga skúringafólki í laun?
Og vill hann taka undir kröfu mína um lækkun eða afnám útsvars á lægstlaunaða?
Hér eru margir í skammarkróknum, seðlabankastjóri og fjármálaráðherra vegna OKURVAXTA á íbúðakaupendur, okurs sem hefur m.a. þau áhrif að gera húsnæðiskostnað leigjenda sem annarra svo illbærilegan. Í tilvísaðri grein minni er ég farinn að leggja til aðför að Svörtuloftum, verði ekki úr bætt.
Fólk er mjög hlynnt því að lækka útsvar í Reykjavík. Verkalýðsforystan gleymir sumum brýnustu málunum, bæði gagnvart borg og ríki!
Jón Valur Jensson, 27.2.2019 kl. 20:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.